Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns

„Ein síðasta teikningin mín í myndröð fyrir Landhelgisgæsluna 2023. Þar með lauk atvinnumennsku minni. Hafði þá teiknað u.þ.b. 4.500 teikningar í fjarvinnslu fyrir stofnanir og fyrirtæki í um 21 ár,“ segir Jói Listó á Facebook-síðu sinni í dag. Mikil aðsókn var á sýningu Jóhanns Jónssonar, Jóa Listó, sem opnaði í Einarsstofu í Safnahúsinu í mars […]

Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp

Áfram er haldið að rifja upp sögu Óskars Matthíassonar og Þóru Sigurjónsdóttur. Nú er það frásögn Haraldar Þorsteins Gunnarssonar, Halla Steina, sem fór á sína fyrstu vetrarvertíð með Óskari á Leó VE 400. Viðtalið birtist í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2023, þar sem sagan var rakin. „Byrjunin er að ég lendi í smá slysi í desember 1975. […]

Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað

Það var í maí 2024 að Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, skrifuðu undir samning milli ráðuneytisins og Vestmannaeyjabæjar sem tryggir verkefnastyrk vegna aðkomu að listaverki eftir Ólaf Elíasson. Nú er listaverkið komið og unnið er að því að koma því fyrir á Nýjahrauni, eins og sést á mynd sem Kristján […]

Fjölskyldusaga – Lífsförunauturinn Þóra

Þóra Sigurjónsdóttir, eiginkona Óskars Matthíassonar, var merk kona sem lifði tímana tvenna og þrenna. Hún fæddist í velsæld, en faðir hennar lést í upphafi kreppunnar miklu á fjórða áratug síðustu aldar. Þá var hún níu ára og móðir hennar mikill sjúklingur. Eftir það átti hún allt undir góðvild annarra, en ung þurftu hún og systur […]

Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti

Séra Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti, hefur sagt embætti sínu lausu. Það gerir hann í kjölfar setningar nýrra starfsreglna um vígslubiskupa sem samþykktar voru á nýliðnu kirkjuþingi. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Kristján er fyrrverandi Eyjaprestur. Hann var kjörinn prestur í Vestmannaeyjum 12. júlí 1998 og tók við embætti vígslubiskups árið 2018. „Ég […]

Snælduvitlaust veður í Vestmannaeyjum

Í Vestmannaeyjum er snælduvitlaust veður, stórviðri af austri með snjókomu. Klukkan 10.00 mældist vindhraðinn 38 metrar á sekúndu og hitinn var 1 stig. Mesti 10 mínútna meðalvindur var 41 m/s og mesta hviða 48 m/s. Veðrið gengur hratt yfir og verða sunnan 5 metrar, 4 stiga hiti og rigning klukkan 12.00. „Viljum við góðfúslega benda ykkur á að appelsínugul […]

Bókin um ESB – Hvað er í pakkanum? 

Eftir Frosta Sigurjónsson. Bókin er skrifuð af því tilefni að Íslendingar gætu fljótlega þurft að taka af­stöðu til þess hvort innganga í Evrópusambandið sé skynsamleg. Hún fjallar ekki um kosti og galla aðildar Íslands að ESB en gefur þess í stað greinargóða lýsingu á uppbyggingu sambandsins, stjórn­kerfi þess og þróun til dagsins í dag. Sérstaklega […]

Útgerðar- og fjölskyldusaga Þóru og Óskars á Leó

Í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2021 er farið yfir sögu útgerðar Óskars Matthíassonar sem oftast var kenndur við Leó VE 400. Óskar hefði hefði orðið 100 ára á sama ár. Nú er þessari sögu, sem hófst 1946 lokið með sölu á Þórunni Sveinsdóttur VE, því mikla afla- og happaskipi til Fáskúrsfjarðar. Fjölskyldan undir forystu Sigurjóns Óskarssonar, skipstjóra […]

Árni Sigfússon – Um Eyjagöng

Árni Sigfússon, formaður félagsins Eyjaganga fer yfir stöðu mála í grein sem hann hefur birt á samfélagsmiðlum. Markmið Eyjaganga er að draga úr óvissu varðandi framkvæmdakostnað á gerð jarðganga milli lands og Heimaeyjar. Segir Árni mikilvægt að framkvæma þrepaskiptar rannsóknir til að draga úr óvissu varðandi kostnað á gerð 18 km jarðganga í bergi undir […]

Bjartsýni á framtíð Eyjanna á erfiðum tímum

Áfram er vitnað í grein Árna Árnasonar, símritara, þar sem hann bregður upp áhugaverðri mynd af lífi þurrabúðarfólks í Vestmannaeyjum um 1900. Viðmælandinn býr við kröpp kjör en er þó bjartsýnn á framtíð Eyjanna. „Það lagast, ungi maður, og það eftir nokkur ár. Trúðu mér, að koma mun sú tíð að eyjan okkar verður rík […]

Þurfa Eyjamenn að taka málin í sínar hendur?

Grafskipið Vestmannaey 1935–2005  – Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2005 – Grafskipið Vestmannaey í  70 ár 1935-2005 – FRIÐRIK ÁSMUNDSSON Vöxtur vélbátaútgerðar í Vestmannaeyjum upp úr aldamótunum 1900 kallaði snemma á umbætur í höfninni: dýpkun, hafnargarða og betra viðlegurými. Árið 1935 var grafskipið Vestmannaey keypt og reyndist lykilverkfæri við að bæta höfnina, þar sem það starfaði nær óslitið í áratugi. […]

Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlagafrumvarpi 2026

Vestmannaeyjar eru ekki fyrirferðarmiklar í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2026 og ekki  meðal þeirra sveitarfélaga sem njóta sérstakrar velvildar í nýju fjárlögunum. Helstu beinu framlög til Eyja eru hófleg svo vægt sé til orða tekið. Samkvæmt fylgigögnum með frumvarpinu fær sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 3 milljónir króna í fjárfestingar. Um er að ræða stofnkostnað sem gæti […]

Hátt í 50 metrar á Stórhöfða

Klukkan 15.00 í dag var tíu mínútna meðalvindur á Stórhöfða 37 metrar á sekúndu og mesta hviða var 48 metrar á sekúndu. Í morgun var snjókoma og síðar slydda og rigning og slapp á götum. Herjólfur fór til Þorlákshafnar í morgun og er á leið í seinni ferð dagsins. Örugglega ljúft leiði á lensinu til […]

Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?

Samgönguáætlun 2026 til 2040 gagnrýnd í bæjarstjórn Vestmannaeyja Ný samgönguáætlun stjórnvalda fyrir árin 2026 til 2040, sem kynnt var í desember hefur vakið mikla óánægju í Vestmannaeyjum. Bæjaryfirvöld telja að áætlunin tryggi ekki nægilegt fjármagn til mikilvægra samgönguinnviða og að þar með sé öryggi og að áreiðanleiki samgangna við Eyjar sé settur í hættu. Samgönguáætlunin, […]

Sveiflur í veðri og ógnar brim

„Norðan 15 til 23 m/s og snjókoma á austanverðu landinu framan af degi, en mun hægari vestanátt og él vestantil. Dregur síðan úr vindi og úrkomu; vestlæg átt 5–15 m/s og él í flestum landshlutum síðdegis. Frost víða 0 til 5 stig. Gengur í austan 15 til 23 m/s á morgun með snjókomu, fyrst á […]

Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 

Rafvæðing, snjallkerfi og sífellt meiri áhersla á hugbúnað eru að umbreyta bílamarkaðinum. Á síðustu árum hafa ný tæknifyrirtæki haslað sér völl í greininni og líta á bílinn sem meira en farartæki. Eitt þeirra er rafbílaframleiðandinn XPENG sem hefur á skömmum tíma vakið athygli fyrir nýsköpun og tækni.  Á Íslandi sér Bílaumboðið Una um sölu og þjónustu XPENG. Fyrirtækið […]

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900

Árni Árnason, símritari, lýsir hér lífskjörum þurrabúðarmanns í Eyjum um aldamótin 1900. Meðan húsbóndinn borðaði virti hann fyrir sér eldhúsið, sem var hreint og þokkalegt en mjög fátæklegt. Þar var einfalt borð undir glugga, koffort og kassi sem notuð voru bæði sem sæti og geymsla. Í litlum skáp voru fáein bollapör og á veggnum diskagrind […]

Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?

Í litlu samfélagi eins og Vestmannaeyjum skiptir máli hvernig ákvarðanir eru teknar, ekki bara hvaða ákvarðanir eru teknar. Traustið sem samfélagið byggir á verður ekki til af sjálfu sér – það skapast með gagnsæi, samráði og sanngirni. Þess vegna er lykilatriði að halda sig við grunngildi (prinsip) í allri ákvarðanatöku, ekki síst hjá þeim sem […]

Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip

Samningur Vegagerðarinnar um sanddælingu í Landeyjahöfn hefur verið gagnrýndur allt frá opnun hafnarinnar árið 2010. Undantekning voru árin 2015 til 2017, þegar belgíska fyrirtækið Jan de Nul bauð lægst og sá um verkið. Tilboð þeirra nam um 588 milljónum króna fyrir dælingu á 750 þúsund rúmmetrum af sandi. Önnur ár hefur Björgun ehf. annast dælinguna […]

Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal

Það er ekki annað að sjá en að vel fari um dæluskipið Álfsnes á Bíldudal við Arnarfjörð þessa dagana. Skipið er í eigu Björgunar sem er með samning við Vegagerðina um sanddælingu í Landeyjahöfn. Álfsnesið var boðið fram sem skip sem átti að uppfylla tilskyldar kröfur, en útkoman hefur því miður verið mikil vonbrigði. Frá […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.