�?órarinn Ingi til reynslu hjá belgísku úrvalsdeildarliði

Þórarinn Ingi Valdimarsson leikmaður ÍBV mun halda til reynslu hjá belgíska úrvaldsdeildarliðinu, KV Mechelen í byrjun næsta mánuðar. Þórarinn sem er 17 ára gamall heldur út þann 3. febrúar og verður í viku. KV Mechelen er í botnbaráttu í belgísku deildinni en liðið er í fimmtánda sæti eftir 18 leiki með 15 stig. (meira…)
Ferðum Herjólfs í dag aflýst – fyrsta ferð klukkan 6:00 á morgun, miðvikudag

Búið er að aflýsa ferðum Herjólfs í dag en athuga átti með síðari ferð skipsins nú klukkan 14:30. Fyrri ferð skipsins var aflýst í morgun. Klukkan 12 var 25 metrar á sekúndu á Stórhöfða og ölduhæð í Bakkafjöru var nú klukkan tvö, tæpir sjö metrar. Samkvæmt veðurspá á vind að lægja þegar líða tekur á […]
Fyrri ferð Herjólfs fellur niður

Fyrri ferð Herjólfs hefur verið aflýst vegna veðurs. Kanna á klukkan 14.30 hvort síðari ferð skipsins verði farin en samkvæmt áætlun leggur skipið úr höfn í Vestmannaeyjum klukkan 16.00 og úr Þorlákshöfn klukkan 19.30. (meira…)
Einn fékk að sofa úr sér um helgina

Einn fékk að sofa úr sér í fangageymslu lögreglunnar í Vestmannaeyja eftir skemmtanahald helgarinnar en sá hafði verið ofurölvi á einum af veitingastöðum bæjarins. Þá var ein líkamsárás kærð til lögreglu en hún átti sér stað á veitingastaðnum Drífanda aðfaranótt þriðjudagsins 15. janúar. Annars fór skemmtanahald helgarinnar vel fram eins og kemur fram í dagbók […]
Fjögur á úrtaksæfingar ungmennalandsliða

Fjögur ungmenni hafa verið valin á úrtaksæfingar hjá íslensku ungmenna-landsliðunum. Þær Guðný Ósk Ómarsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir hafa verið boðaðar á landsliðsæfingar hjá U-16 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Þjálfari liðsins, Kristrún Lilja Daðadóttir hefur valið hóp 30 stúlkna til að taka þátt í æfingunum sem fara fram í Kórnum í Kópavogi. (meira…)
Fljúgandi hálka á götum bæjarins

Fljúgandi hálka er nú á götum Vestmannaeyjabæjar enda hitastig komið vel upp fyrir frostmark og snjó farinn að bráðna. Árekstur varð nú rétt fyrir hádegi sem rekja má til hálkunnar og eins og sjá má á myndinni glansa ökuljós bifreiðanna í hálkunni á götunni. Engin slys urðu á fólki og aðeins lítilsháttar skemmdir á bílunum. […]
Jafnt gegn Fjölni

Knattspyrnulið ÍBV lék fyrsta æfingaleik sinn um helgina þegar liðið mætti Fjölni á laugardag. Liðin léku einmitt bæði í 1. deild síðasta sumar en Fjölnismenn komust upp í úrvalsdeild en Eyjamenn sátu eftir. ÍBV tefldi fram mjög ungu liði en þrátt fyrir það endaði leikurinn 1:1. Þrír brasilískir leikmenn er nú til reynslu hjá ÍBV […]
Varað við stormi sunnanlands og vestan
Spáð er hlýnandi veðri og hita yfir frostmarki um land allt á morgun, og hefur Veðurstofan varað við stormi sunnanlands og vestan í nótt. Hiti verður víðast á bilinu þrjú til fjögur stig á morgun, en síðan kólnar aftur og spáð fremur köldu veðri fram að helgi. (meira…)
Álftanes vann ÍBV

Körfuknattleikslið Álftaness vann í gær mikilvægan sigur á ÍBV í 2. deild karla í körfuknattleik, 84-70. Eyjamenn byrjuðu betur og höfðu yfir eftir fyrsta fjórðung 20-23. Heimamenn snéru leiknum sér í hag í öðrum leikhluta og voru yfir eftir hann 43-39. Skipulagður, agaður varnarleikur lagði grunninn að forystu Álftaness. Leikmenn liðsins héldu áfram á sömu […]
Vestmannaeyjabær bar ekki ábyrgð á banaslysi

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Vestmannaeyjabæ af bótakröfu ekkju karlmanns, sem lést árið 2000 þegar bíll, sem maðurinn var farþegi í, fór fram af bryggjunni í Vestmannaeyjahöfn og lenti í sjónum. Ökumaður bílsins lést einnig í slysinu. Lögreglan taldi að slysið hefði orðið með þeim hætti, að hægra framhjól bílsins hefði farið út fyrir bryggjukantinn og […]
Norska ríkissjónvarpið með þátt um gosið

Norski sjónvarpsmaðurinn Geir Helljesen var á ferðinni hér í Eyjum í vikunni en hann var að vinna að gerð sjónvarpsþáttar um eldgosið sem sýndur verður á besta tíma í norska ríkissjónvarpinu. Geir hefur fylgst vel með í Eyjum, flaug yfir gosstöðvarnar fyrir 35 árum og kom hingað þrívegis í gosinu og nokkrum sinnum síðan þá. […]
Atli valinn á æfingar U-21 árs liðsins

Atli Heimisson, leikmaður karlaliðs ÍBV í knattspyrnu hefur verið valinn á úrtaksæfingar hjá U-21 árs liði Íslands. Lúka Kostic, landsliðsþjálfari hefur verið 26 leikmenn til æfinganna en þær fara fram 26. og 27. janúar í Kórnum í Kópavogi. (meira…)
Myndir frá Viðurkenningarhátíð ÍBV komnar á netið

Eins og kemur fram hér á vefnum fór fram Viðurkenningarhátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja í íþróttamiðstöðinni í gærkvöldi. Sigurður Bragason var valinn íþróttamaður ársins og Arnór Eyvar Ólafsson íþróttamaður æskunnar fyrir árið 2007. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari var á staðnum og myndaði en hægt er að sjá myndirnar í myndasafni Eyjafrétta. (meira…)
Sigurður Bragason Íþróttamaður Vestmannaeyja 2007

Íþróttabandalag Vestmannaeyja hélt sína árlegu viðurkenningahátíð í Íþróttamiðstöðinni í kvöld. Sigurður Bragason, handknattleiksmaður var þar kjörinn Íþróttamaður Vestmannaeyja 2007. Kom það kjör ekki á óvart; Sigurður hefur verið burðarás karlahandboltans í Eyjum um árabil, bæði innan vallar sem utan. Var hann ákaft hylltur af fjölmörgum gestum viðurkenningahátíðarinnar. (meira…)
Rómantík í snjónum
Það getur oft verið rómantískt að sitja með elskunni sinni í snjónum og dást að fegurðinni, bæði í náttúrunni og við hliðina á sér. Hins vegar virðist sem stefnumót parsins sem má sjá í myndbandinu hér að neðan, hafi farið illilega úrskeiðis en við látum myndirnar tala sínu máli. (meira…)
Volare ehf og Heimaey ehf kaupa Vesturveg 10
Volare ehf. og Heimaey ehf. hafa fest kaup á húsnæðinu við Vesturveg 10 en þar hefur húsgagnaverslunin Reynisstaður verið til húsa frá því að húsið var byggt árið 1984. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu sem fyrirtækin þrjú sendu frá sér og lesa má hér að neðan. (meira…)
Íþróttamaður ársins í kvöld

Í kvöld klukkan 20 verður viðurkenningahátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja og Vestmannaeyjabæjar haldið í íþróttamiðstöðinni en þar verða veittar viðurkenningar fyrir afrek á árinu 2007. Hvert aðildarfélag innan héraðssambandsins tilnefnir leikmann ársins hjá sér en auk þess verða afhent verðlaunin íþróttamaður æskunnar og svo að sjálfsögðu íþróttamaður ársins. (meira…)
Vaktin komin í dreifingu
Nýjasta tölublað Vaktarinnar er nú á leiðinni inn á hvert heimili í Vestmannaeyjum. Í blaðinu kennir margra grasa og þar sem Þakkargjörðarhátíðin verður haldin næstkomandi miðvikudag er eldgosið 1973 áberandi í blaðinu. M.a. er rætt við Sigurgeir Jónasson, ljósmyndara sem myndaði eldsumbrotin í bak og fyrir. Þá er einnig rætt við Öldu Björnsdóttur, sem dreymdi […]
Hver að verða síðastur til að taka þátt í Peyjabankanum

Eins og undanfarin ár setja strákarnir í handboltaliði ÍBV af stað Peyjabankann svokallaða þegar stórmót fer fram í handbolta. Evrópumótið hefst einmitt í dag og fyrstu leikirnir fara fram klukkan fimm. Um leið lokar Peyjabankinn og því fer hver að verða síðastur til að skrá sig. Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV hefur yfirumsjón með bankanum og […]
Elding olli tjóni uppi á Klifi

Það brá mörgum í brún um hádegisbil í gær þegar eldingu laust niður í Klifið sem gnæfir yfir höfnina í Vestmannaeyjum með tilheyrandi drunum. Eftirköstin komu fljótlega í ljós en nokkur fyrirtæki á hafnarsvæðinu eru símasambandslaus. Þá urðu skemmdir uppi á Klifi en þar er móttökubúnaður og útsendingabúnaður fyrir m.a. sjónvarp, útvarp og fleira. Unnið […]