Sparkaði ekki viljandi í pung
Kona sem ákærð var fyrir að sparka í pung manns í Vestmannaeyjum árið 2005var sýknuð í Héraðsdómi Suðurlands í gær. Dómnum þótti ekki sannað að konan hefði sparkað viljandi í klof mannsins, heldur hefði sparkið verið ósjálfráð viðbrögð við hálstaki sem maðurinn hafði á henni. Sparkið átti sér stað á veitingastaðnum Prófastinum í Vestmannaeyjum í […]
Tvær þjóðir í landinu

Á fimmtudagskvöldið síðasta var haldinn fundir hjá Vinstri grænum í Vestmannaeyjum, gestur fundarins var Atli Gíslason þingmaður Suðurkjördæmis. Fundurinn var vel sóttur og voru samþykktar eftirfarandi ályktanir: Opinn fundur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs í Vestmannaeyjum haldinn 8. nóv. 2007 ályktar eftirfarandi: Á undanförnum árum hefur hvers konar misrétti í íslensku samfélagi aukist. Launamunur eykst, jafnrétti […]
Sýknuð af pungsparki á Prófastinum
Kona var sýknuð af ákæru um líkamsárás í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Hún var sökuð um að hafa í júlí 2005 sparkað í klof manns á skemmtistaðnum Prófastinum í Vestmannaeyjum. Í ákæru segir að sparkið hafi verið svo fast að maðurinn sem fyrir því varð hafi misst andann, hnigið niður í gólfið og „pissað blóðlituðu […]
Atvinnubílstjóri sýknaður af beltaleysi
Atvinnubílstjóri var sýknaður af ákæru lögreglunnar í Vestmannaeyjum fyrir að vera ekki með bílbelti. Hélt hann því fram að atvinnubílstjórar væru með undanþágu frá því að spenna á sig beltið ef um stuttar vegalengdir væri að ræða. (meira…)
Hluthafar vilja afskráninguna

Vinnslustöðin fer úr Kauphöllinni samkvæmt ákvörðun hluthafafundar. Næststærsti hluhafinn biður Kauphöllina að hafna eða fresta afkráningu. „Umboð stjórnarinnar er nú ljóst,” segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar og forsvarsmaður Eyjamanna ehf., sem á rétt rúm 50 prósent í Vinnslustöðinni. Hluthafafundur samþykkti á miðvikudag að farið yrði fram á afskráningu félagsins úr Kauphöll Íslands. Boðað var […]
Samgöngumál og róður á Blíðu

Var að koma í land áðan, eftir að hafa verið á sjó í 18 tíma. Afli var ágætur, rúm tvö tonn á 14 bala. Veðrið í nótt var mjög erfitt, mikill sjór og gekk á með éljum, en sem betur fer lægði þegar leið á morguninn. Í gær átti ég ágætt samtal við Jón Bernódusson […]
Nótt safnanna sett í gærkvöldi

Í gærkvöldi var Nótt safnanna sett í Stafkirkjunni, Jarl Sigurgeirsson söng sálma við undirleik Guðmundar Guðjónssonar og Kristín Jóhannsdóttir setti svo hátíðina sem stendur yfir alla helgina.Í gærkvöldi voru svo tónleikar með Mugison í Höllinni. Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi: Laugardagur 10. nóvember 14.00 Safnahús Sýningar á vegum bókasafnsins: Konan í Norðri og Saga íslenskra biblíuþýðinga. […]
Kap með rifna nót í Reykjavík

Síldveiðiskipið Kap VE frá Vestmanneyjum kom síðdegis í dag til Reykjavíkur með rifna nót. Mikil fyrirhöfn er að taka svona nætur í land því þær eru gríðarlega stórar. Kap var að síldveiðum í Grundafirði á litlu dýpi eða 6 til 8 föðmum en nótin sem Kap er með er 120 faðma djúp. (meira…)
Saga af alþjóðaflugvelli

Þegar Bretar komu til Íslands í maí 1940 lögðu þeir áherslu á gott flugvallarstæði og varð Kaldaðarnes við Ölfusá fyrir valinu. Mikil flóð í ánni urðu svo til þess að flugvöllurinn lagðist af og var starfssemin flutt til Keflavíkur. Nú eru aftur uppi umræður um flugvallarstarfssemi í nágrenni Selfoss. Í fyrsta lagi var samþykkt merk […]
Ekki viljaleysi af hálfu Árborgar
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri í Árborg, segir að ekki sé um að ræða aðgerða- og viljaleysi af hálfu bæjaryfirvalda í viðræðum við ráðuneyti vegna áforma um kaup og sölu á landi við Litla-Hraun, eins og skilja megi af ummælum fangelsismálastjóra í blaðinu24 stundum í dag. (meira…)
Sögur af flugvöllum
Ég var að koma úr leiðangri á austurhálendinu og sé að á tveimur bloggsíðum er fjallað um millilandaflugvelli á Suðurlandi sem varaflugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, annan við Bakka og hinn við Selfoss. Hvorugur getur hins vegar orðið slíkur varaflugvöllur því að Suðurland er á sama veðursvæði og Keflavíkurflugvöllur en það er Reykjavíkurflugvöllur hins vegar ekki. (meira…)
ÍBV fékk heimaleik gegn úrvalsdeildarliði Keflavíkur

Í vikunni var dregið í fyrstu umferð bikarkeppninnar í körfubolta en ÍBV var nú skráð til leiks í keppnina en Eyjamenn hafa ekki tekið þátt síðustu ár. Þar sem ÍBV leikur í 2. deild þarf liðið að leika einn leik í forkeppni en þar dróst ÍBV á móti B-liði úrvalsdeildarliðs Hamars frá Hveragerði en leikurinn […]
Bílstjóri sýknaður af beltaleysi

Atvinnubílstjóri var sýknaður af ákæru lögreglunnar í Vestmannaeyjum fyrir að vera ekki með bílbelti. Hélt hann því fram að atvinnubílstjórar væru með undanþágu frá því að spenna á sig beltið ef um stuttar vegalengdir væri að ræða. Það var í júlí síðastliðnum sem lögreglan í Vestmannaeyjum urðu varir við að bílstjóri sendibíls var ekki með […]
Konur og tæki
Það þekkja það margir, hvað konur eiga erfitt með að bakka bíl í stæði. Eða hvað þessar elskur eru lítið fyrir græjur. Annað en karlarnir, sem kunna svo vel að bakka í stæði og kunna á allar græjur. Eða……. (meira…)
Jóakim aðal-önd

Hver man ekki eftir Andrésar andar blöðunum? Fyrstu blöðin sem ég sá voru á dönsku en maður hló af myndunum. Svo var farið að þýða þetta yfir á íslensku. En ég hélt áfram að hlæja af myndunum. Ein persónan var frændi Andrésar, Jóakim aðalönd. Forríkur og hafði frændann og synina í vinnu við að passa […]
�?órhallur sló í gegn í Framhaldsskólanum

Þórhallur Þórhallsson, sonur grínistans Ladda, var með uppistand í sal Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum í hádeginu. Óhætt er að segja að Þórhallur hafi slegið í gegn enda mikið hlegið. Þórhallur er einmitt fyndnasti maður Íslands en þá keppni vann hann á dögunum. Það var Nemdendafélag skólans sem bauð nemendum upp á uppistandið og auk þess var […]
Fann Haftyðril og álkuunga í göngutúr á Stórhöfða

Haftyðrill og olíublautur álkuungi eru nú í fóstri hjá Kristjáni Egilssyni, forstöðumanni Fiska- og náttúrugripasafns Vestmannaeyja. Marinó Sigursteinsson fann fuglana á dögunum suður við Stórhöfða og kom þeim í hendur Kristjáni. Kristján sagði í samtali við Vaktina að haftyðrillinn, sem líka er nefndur halkion, verpti norður við Thule á Grænlandi. Talið er að í halkionbyggðum […]
Ásgeir keyptur fyrir fimm krónur og ís

Það er orðið alþekkt í fótboltaheiminum að leikmenn gangi kaupum og sölum en elsta sagan hér af landi af slíku fjallar um mann sem margir telja besta knattspyrnumann Íslands fyrr og síðar. Atvikið varð upp úr 1960 þegar Ásgeir Sigurvinsson var keyptur í fyrsta sinn, og kaupverðið, 5 krónur og ís. Ásgeir hafði hafið feril […]
Vinstri græn í Vestmannaeyju álykta

Í gær var haldinn opinn fundur hjá Vinstrihreyfingunni grænt framboð í Vestmannaeyjum en fundarmenn sameinuðust um ályktun þar sem misrétti í þjóðfélaginu er mótmælt. Fundurinn krefst þess að ríkisstjórnin sjái til þess m.a. að grunnþjónusta, s.s. grunnmenntun á öllum skólastigum verði ávallt í höndum opinberra aðila og ókeypis. Auk þess fer fundurinn fram á að […]
Handverksmarkaður Eyjamanna í Mjóddinni á morgun laugardag.

S.l. tvö ár hefur Átthagafélag Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinustaðið fyrir handverksmarkaði Eyjamanna í Reykjavík. Hefur þessi markaður vakið miklar lukku og er hann vel sóttur af eyjamönnum sem og öðrum. Um kvöldið ætlar svo ÁTVR að sameina bjórkvöld og slútt á handverksmarkaði með balli í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Húsið opnar klukkan 22:00 og er það eyjahljómsveitin […]