Stelpurnar geta komist í úrslit

ÍBV og Grótta eigast við í kvöld í fjórða leik liðanna um laust sæti í úrslitaeinvíginu. ÍBV leiðir einvígið 2:1 og getur því komist í úrslitaleikinn með sigri, takist Gróttu að vinna verður oddaleikur á Seltjarnarnesi á laugardaginn. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:00 en búist er við mikilli mætingu. Barist verður um hvert sæti […]
Fyrsti maí í skugga kjaradeilna

Fyrsti maí er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins og verður dagskráin í Vestmannaeyjum hefðbundin. Í dag er fyrsti dagur aðgerða félaga í Drífanda stéttarfélagi og leggst vinnur niður í fiskverkun og fleiri greinum. �?etta mun örugglega lita dagskrá hátíðarhaldanna á morgun. Hefst hún með baráttufundi í Alþýðuhúsinu kl. 15.00. Ræðumaður verður Arnar Hjaltalín formaður Drífandi stéttarfélags. Boðið […]
Sigurður Ingi – Maður orða sinna

Á seinustu dögum hafa fjölmiðlar réttilega hælt Sigurði Inga Jóhannssyni og hossað honum fyrir viðbrögð hans við niðurstöðu umboðsmanns Alþingis hvað varðar hið svokallaða Fiskistofumál. Umboðsmaður Alþingis taldi sem sagt að rangt hafi verið að málum staðið og vinnubrögð ekki í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti. Ráðherrann gekkst auðmjúkur við því og viðurkenndi mistök. Í viðtali […]
Er hægt að mynda sátt um leiðir?

�?að dyljast engum þau vonbrigði sem Landeyjahöfn hefur valdið og staðan á samgöngum við Eyjar er orðin að meini í bæjarlífinu. Staða, sem er að ganga hart að ferðaþjónustunni í Eyjum og fyrirtækjum sem byggja rekstur sinn á öruggum samgöngum eins og fólkið sem þolir ekki lengur óvissuna. Í vetur hefur keyrt um þverbak en […]
Landeyjahöfn – Er 1. maí dagurinn sem allir hafa beðið eftir?

�?essa stundina eru þrjú skip að dæla í Landeyjahöfn og aðstæður eins góðar og þær geta orðið, �?lduhæð um og innan við einn meter. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta er stefnt á að opna Landeyjahöfn á föstudaginn þann fyrsta maí gangi allt að óskum. Veður og ölduspá er hagstæð næstu daga nema að ölduhæð gæti farið upp […]
Vel heppnaður starfadagur þar sem 57 störf voru kynnt

Á föstudaginn var haldinn Starfadagur í Framhaldsskólanum þar sem Vestmannaeyingar sem starfa við ýmis fyrirtæki og stofnanir í Eyjum kynntu störf fyrir nemendum Framhaldsskólans og Grunnskólans og líka almenningi. Kynningin var samstarfsverkefni GRV, FÍV og Visku, fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar Vestmannaeyja. Markmiðið með henni er að kynna störf hér í Eyjum þar sem krafist er menntunar, […]
Kynning á hagspá greiningardeildar Arion banka í Eyjum

Arion banki býður til fundar þar sem ný hagspá greiningardeildar verður kynnt. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl kl. 16:30 á veitingastaðnum Einsa Kalda. Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum. Dagskrá �?lga í lygnum sjó – efnahagshorfur 2015-2017 Regína Bjarnadóttir, forstöðumaður Greiningardeildar Arion banka Akkerum lyft – hvert mun fljótandi króna fara? […]
Fjármál við starfslok, fræðslufundur í Eyjum í dag kl. 16.30

Í dag 29. apríl kl. 16:30 er Vestmannaeyingum boðið á gagnlegan fræðslufund í Akoges salnum, en fundarefnið hentar öllum þeim sem vilja búa sig vel undir starfslokin, sem og þeim sem hættir eru að vinna. Fjármálin geta flækst til muna á eftirlaunaaldri og verður því rætt á mannamáli um skattamál, greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar, úttekt […]
Smíði hafin á Breka VE

Kínverskir skipasmiðir leggja kjöl að Breka VE núna í maímánuði og í júní eða í júlí verður komin mynd á skipið. Guðni Ingvar Guðnason, umsjónarmaður fasteigna og skipa Vinnslustöðvarinnar, er nýkominn heim frá Kína. Hann ræsti þar vél sem fór samstundis að skera stál í nýja skipið. Breki verður systurskip togara sem smíðaður er á […]
Hásteinsvöllur �?? okkar vígi

Nú er að bresta á að keppnistímabilið í Pepsídeildinni hefjist og fyrsti leikur karlaliðs ÍBV er sunnudaginn 3. maí gegn Fjölni á útivelli. Sunnudaginn 10. maí er svo fyrsti heimaleikur liðsins gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar. Undirbúningur liðsins hefur verið langur og strangur og leikmenn liðsins lagt mikið á sig í þeirri viðleitni að koma sem best […]
Sigur gegn Selfoss

ÍBV lagði í kvöld Selfoss að velli 1-0. Leikurinn var síðasti æfingalekur liðsins fyrir Íslandsmótið sem hefst sunnudaginn 3. maí þegar ÍBV heimsækir Fjölni. Hin ungi og efnilegi Devon Már Griffin skoraði eina mark leiksins eftir aukaspyrnu í síðari hálfleik. (meira…)
Frábær sigur ÍBV á Gróttu

ÍBV vann í kvöld frábæran sigur á deildarmeisturum Gróttu, 25-22. Stelpurnar eru því komnar yfir í einvíginu um að komast í úrslitaleikinn um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. Jafnræði var með liðunum á fyrstu mínútum leiksins, ÍBV gerðu sig seka um marga tæknifeila í upphafi leiksins en upp úr miðjum hálfleik fóru ÍBV að taka öll völd á […]
Vorhátíð ÍBV á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 30. apríl nk. verður haldið glæsilegt konu- og karlakvöld ÍBV. Logi Bergmann mun stýra skemmtun herranna í Höllinni á meðan Svanhildur Hólm skemmtir sér með konunum á Háaloftinu. Ingó Veðurguð, Halldór Fjallabróðir og Sverrir Bergmann sjá svo um að koma fólkinu í rétta gírinn fyrir trylltan dansleik sem byrjar á miðnætti. Dagskrá: 19:30 Húsið […]
Maggý VE fékk tundurdufl í veiðafærin

Í tilkynningu frá lögreglunni um verkefni vikunar segir frá því að þann 22. apríl síðast liðinn var lögreglu tilkynnt um að Maggý VE hafi fengið tundurdufl í snurvoðina við Landeyjasand. �?skað var eftir aðstoð Landhelgisgæsluna og kom sprengisveit hennar til Eyja og var farið með duflið í malarnámuna austast á Nýjahrauni þar sem það var […]
Gæti farið að styttast í að Landeyjahöfn opnist

Núna er eitt skip að dæla í Landeyjahöfn en flesti hafa skipin verið þrjú. Annað skip bætist við í kvöld og lítur vel út með framhaldið miðað við veður- og ölduspá. �??�?að er búið að dýpka vel á rifinu og það er talið gott. en það er enn töluvert eftir í hafnamynninu og innan hafnar. […]
Grótta-ÍBV í kvöld

�?riðji leikur Gróttu og ÍBV fer fram í kvöld klukkan 19:30 í undanúrslitum Olísdeildar kvenna. Einvígið hefur verið frábær skemmtun hingað til og er staðan jöfn 1-1. Liðin mættust síðasta fimmtudag þar sem Grótta hafði betur á heimavelli 27-16 en ÍBV jafnaði einvígið síðastliðin laugardag þegar þær sigruðu Gróttu 30-29. Grótta eru ríkjandi deildarmeistarar en […]
Kynning á Háskólagáttinni í Visku í dag.
Mánudaginn 27. apríl verður Háskólinn á Bifröst með kynningu á Háskólagáttinni. Kynningin fer fram í húsakynnum Visku, Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja kl. 12-14. Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir, forstöðumaður Háskólagáttar og Sandra Björk Jóhannsdóttir, verkefnastjóri kynna námsleiðina og annað námsframboð við Háskólann á Bifröst. Háskólagáttin þjónar þeim sem þurfa á undirbúningsnámi að halda áður en hafist er […]
Sigurgöngunni lauk í dag

Stelpurnar í unglingaflokki hafa spilað sinn síðasta leik á tímabilinu en þær töpuðu naumlega í dag gegn Fylki 20-19, í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Stelpurnar sem eru ríkjandi deildar- og bikarmeistarar töpuðu aðeins tveimur leikjum á tímabilinu og er árangurinn hreint út sagt magnaður hjá þessum efnilegu stelpum. Margar af stelpunum spiluðu í dag sinn síðasta […]
ÍBV jafnaði einvígið

Hart var barist í dag þegar ÍBV og Grótta mættust í öðrum leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV sigraði leikinn 30-29 og jafnaði þar með einvígið við Gróttu sem hafði unnið fyrsta leik liðanna. Leikurinn fór fjörlega af stað og strax á 3. mínútu leiksins fékk Anna �?rsúla Guðmundsdóttir,leikmaður Gróttu beint rautt spjald eftir […]
Snögg veðrabrigði: Sinueldur í gær �?? Snjór í dag

Í gær var hið besta veður í Vestmannaeyjum, bjart, hafði lygnt mikið og var bara notalegt að vera úti við. Lögreglan var kölluð að Foldahrauni þar sem kveikt hafði verið í sinu nálægt húsum. Lögregla og Slökkvilið brugðust snöggt við og ekki varð tjón. Ekki þarf að hafa áhyggjur af sinueldum í Vestmannaeyjum í dag […]