Brúarfoss kemur við í Eyjum á morgun

Eimskip hefur gripið til þeirrar ráðstöfunar að breyta áætlun Brúarfoss, skipi Eimskipafélags Íslands á morgun sunnudag 23. mars á leið sinni til Íslands frá Evrópu til þess að bregðast við þeim aðstæðum sem skapast hafa í Eyjum vegna verkfalls undirmanna Herjólfs. Brúarfoss mun flytja gáma til Reykjavíkur sem ætlaðir eru til innanlandsvinnslu og útflutnings. Með […]

ÍBV hélt þriðja sætinu

ÍBV tók á móti FH í dag í síðustu umferð Olísdeildar kvenna. ÍBV þurfti á sigri að halda til að halda þriðja sætinu en Fram hefði getað skotist upp fyrir ÍBV ef Safamýrarliðið myndi vinna Hauka og ÍBV tapa fyrir FH. ÍBV dugði í raun og veru bara eitt stig en að sjálfsögðu var stefnan […]

Athugasemd við athugasemd

Áfram heldur fulltrúi Sjómannafélags Íslands að bera vísvitandi út rangar fréttir frá fundum hjá ríkissáttasemjara. �?að er gríðarlega alvarlegt og sýnir betur en margt annað að sá aðili er ekki mikið að hafa áhyggur af því hvort eða hvenær þessi alvarlega deila leysist. Hann ætlar líklega eins og hann svo smekklega sagði í upphafi að […]

Athugasemd frá Jónasi Garðarssyni

Sælir Eyjamenn. Vegna fréttar um ósannindi mín og samninganefndar Sjómannafélags Íslands SÍ frá �?lafi Hand hjá Eimskip, þá skal því haldið til haga að nefndur �?lafur situr ekki samningafundi og hefur samninganefnd SÍ aldrei hitt hann eða séð. Varðandi þá fullyrðingu �?lafs að samninganefnd Eimskips hafi boðið hitt og þetta í kjarabætur til Herjólfsfólks, þá […]

Heldur ÍBV þriðja sætinu?

Í dag fer fram síðasta umferð Olísdeildar kvenna þennan veturinn. Fyrir leiki dagsins er ÍBV í þriðja sæti deildarinnar, með tveggja stiga forskot á Fram, sem er í þriðja og tveimur stigum á eftir Val, sem er í öðru sæti. Fram getur enn stolið þriðja sætinu af ÍBV með því að leggja Hauka að velli […]

Siggi Raggi fundar með stuðningsmönnum á morgun

Á morgun, laugardag, mun Siggi Raggi þjálfari meistaraflokks karla í fótbolta koma til Eyja og vera með fund fyrir stuðningsmenn liðsins í ÍBV heimilinu (áður Týssheimilið) klukkan 15:00. Stuðningsmenn eru kvattir til að mæta og fá stöðuna á liðinu fyrir sumarið beint í æð. Fyrir hönd knattspyrnuráðs, Hjálmar Jónsson Framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV (meira…)

Dröfn í landsliðið

Markvörður ÍBV, Eyjakonan Dröfn Haraldsdóttir hefur verið valin í íslenska landsliðið. Florentina Stanciu, fyrrum markvörður ÍBV og núverandi markvörður Stjörnunnar, þurfti að draga sig út úr hópnum og kemur Dröfn í hennar stað. Íslenska liðið mætir Frökkum heima og heiman í undankeppni EM síðar í þessum mánuði. Leikið verður í Laugardalshöll miðvikudaginn 26. mars og […]

Saka Sjómannafélagið um ósannindi

�??Að vera með svona ósannindi og skæruhernað í fjölmiðlum er ekki til þess fallið að leysa þessa deilu. Að halda heilu samfélagi í gíslingu með svo óraunhæfum kröfum gengur ekki lengur,�?? segir �?lafur Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips í samtali við Mbl.is. �?ar svarar hann ummælum Jónasar Garðarssonar, framkvæmdastjóra Sjómannafélags Íslands á sama miðli. �??Við fórum yfir […]

Víkingur siglir þrjár ferðir í dag

Víkingur mun sigla þrjár ferðir í Landeyjahöfn í dag. Skipið sigldi í morgun klukkan 8:30 frá Eyjum og klukkan 10:00 frá Landeyjahöfn. Næsta ferð verður frá Eyjum 14:30 og frá Landeyjahöfn 16:00. Síðasta ferð dagsins er svo 17:30 frá Eyjum og 19:00 frá Landeyjahöfn. Farþegar eru minntir á að einungis eru strætóferðir í tengslum við […]

Forsala miða á Herrakvöldið gengur vel

Í kvöld verður hið geysivinsæla herrakvöld handboltadeildar ÍBV og verður það haldið næsta föstudag í golfskálanum. Herrakvöldið hefst klukkan 19:30 en forsala miða er hjá Viktori rakara, í síma 896-4791 og hjá Sigga Braga í síma 844-3026 en forsalan hefur gengið mjög vel og ljóst að stemmningin verður rosaleg í kvöld. Dagskrá kvöldsins er spennandi […]

Grjóthrun úr Klifi í gær

Í gær var tilkynnt um grjóthrun úr Klifi en tveir grjóthnullungar höfðu farið af stað og hafnað á Eiðisveginum. �?etta kemur fram á Facebook síðu lögreglunnar í Vestmannaeyjum en þar segir jafnframt að fílefldir lögreglumenn á vaktinni hafi rúllað grjótinu út af veginum. �??�?að er rétt að fólk hafi í huga að í leysingum og […]

Um 2.300 manns búnir að skrifa undir

Nú hafa um 2.300 manns skrifað undir undirskriftalista þar sem deiluaðilar í verkfalli undirmanna Herjólfs eru hvattir til að leysa deiluna og semja. �?jóðvegurinn Herjólfur hefur nú verið meira og minna lokaður í rúmar tvær vikur, skipið hefur til þessa aðeins siglt eina ferð á virkum dögum en ekkert á laugardögum og sunnudögum. Ef allt […]

Víkingur í Landeyjahöfn

Víkingur mun sigla í Landeyjahöfn í dag. Skipið fer frá Eyjum klukkan 8:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 10:00. Allar ferðir Herjólfs falla niður í dag, föstudag, á morgun, laugardag og á sunnudag vegna verkfalls Sjómannafélags Íslands. �?lduspá er hagstæð fyrir siglingar í Landeyjahöfn en á sunnudagskvöld á ölduhæð að hækka verulega samkvæmd ölduspá. (meira…)

Ekki öruggt en tvö stig í hús

ÍBV náði í kvöld fimm stiga forskot á Val en Eyjamenn eru í öðru sæti Olísdeildarinnar á meðan Valur er í því þriðja. ÍBV lagði HK að velli í kvöld en lokatölur urðu 36:27. Lokatölurnar gefa þó ekki rétta mynd af gangi leiksins því HK veitti ÍBV harða mótspyrnu, var aldrei langt undan þótt ÍBV […]

�?okast ekkert áfram

Ekkert þokast í samningaviðræðum Sjómannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins vegna verkfalls undirmanna á Herjólfi. �?að bendir því allt til þess að skipið hafi siglt sína síðustu ferð þar til á mánudaginn en Sjómannafélagið hefur boðað hertari verkfallsaðgerðir þannig að undirmenn leggja niður vinnu eftir síðustu ferð á fimmtudögum og mæta ekki aftur til vinnu fyrr […]

HK í heimsókn í kvöld

Karlalið ÍBV tekur á móti HK í kvöld í Olísdeild karla. Fyrirfram væri hægt að reikna með öruggum sigri ÍBV enda HK langneðst í deildinni og er fallið á meðan ÍBV er í öðru sæti. En það er vel þekkt að lið sem eru fallin, mæta afslappaðri til leiks og geta verið hættuleg. Eyjamenn mega […]

Kennir Eyjamönnum að spara pening

Sveinn Waage

Íslandsbanki býður upp á námskeið í Meniga í dag, fimmtudag klukkan 17:00 í Akóges. Meniga er heimilisbókhald Íslandsbanka og í tilkynningu frá bankanum kemur fram að allir séu velkomnir á námskeiðið. Eyjamaðurinn Sveinn Waage er nýtekinn við sem markaðsstjóri Meniga en síðustu fjögur ár hefur hann starfað sem vörumerkjastjóri hjá �?lgerðinni. Meniga er vefur sem […]

Röntgentækið ónýtt

Máltækið �??lengi getur vont versnað�?? á vel við um ástandið í Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja um þessar mundir. Röntgentæki stofnunarinnar hefur verið úrskurðað ónýtt og hefur ekki verið nothæft alla þessa viku. �?etta kemur fram á Vísi.is og segir jafnframt að ástandið sé svo slæmt að Eyjamenn hafi þurft að fá lánað röntgentæki frá dýralækni í Reykjavík. […]

Andri í Grindavík

Eyjamaðurinn Andri �?lafsson hefur skrifað undir samning við Grindavík út komandi tímabil. Andri fór frá ÍBV í KR fyrir síðasta tímabil en spilaði ekkert um sumarið eftir að hafa meiðst stuttu fyrir mót. Andri hefur æft með Grindvíkingum undanfarið en hann er 28 ára gamall og styrkir lið Grindvíkinga verulega, sem spila í 1. deild. […]

�?etta er ekki boðlegt

�?rír af þingmönnum Suðurkjördæmis, þau Unnur Brá Konráðsdóttir og Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki og Páll Valur Björnsson, Bjartri framtíð, vöktu athygli þingheims á þeim vanda sem skapast hefur í Vestmannaeyjum vegna verkfalls undirmanna á Herjólfi. Unnur Brá tók fyrst til máls og sagði fulla ástæðu fyrir þingheim að fylgjast grannt með því sem er að gerast […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.