�?etta er ekki boðlegt
�?rír af þingmönnum Suðurkjördæmis, þau Unnur Brá Konráðsdóttir og Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki og Páll Valur Björnsson, Bjartri framtíð, vöktu athygli þingheims á þeim vanda sem skapast hefur í Vestmannaeyjum vegna verkfalls undirmanna á Herjólfi. Unnur Brá tók fyrst til máls og sagði fulla ástæðu fyrir þingheim að fylgjast grannt með því sem er að gerast vegna verkfallsins. �??Eyjamenn búa nú við mjög erfiðar samgöngur, 14 dagar eru frá því að aðgerðir hófust og samgöngur til Eyja hafa verið í lamasessi. Í dag fáum við til okkar ályktun frá bæjarráði Vestmannaeyja þar sem ástandinu er lýst. Án þess að ég taki afstöðu í þessari kjaradeilu sem er auðvitað ekki okkar hlutverk verðum við að líta til þess að það er sjálfsögð grunnþjónusta við íbúa eyjanna og þá sem þangað þurfa að sækja þjónustu og annað að hægt sé að komast þangað. �?ess vegna verðum við í þinginu að íhuga, ef samningar fara ekki að takast milli aðila, með hvaða hætti okkur beri að taka á málinu. Mig langaði að vekja athygli hæstvirtra þingmanna á því,�?? sagði Unnur Brá, sem í Eyjafréttum í dag bendir á neyðarrétt íbúa Vestmannaeyja til eðlilegra samgangna og velti því fyrir sér hvort ríkið verði ekki að grípa inn í.
Ekki leyst nema með aðkomu stjórnvalda
Vilhjálmur benti á að heilbrigðisþjónusta í Eyjum hefði verið skert og tók dæmi að ef íbúi í Vestmannaeyjum þurfi að sækja læknisþjónustu klukkan 11:00 í Reykjavík á fimmtudegi, þarf viðkomandi að leggja af stað á miðvikudegi og koma aftur heim á mánudegi. �??�?að er mjög alvarlegt að samningsaðilar tali ekki saman og þegar þeir hittast er ekkert að frétta. Við í þessum sal verðum því að hvetja þau til að halda áfram. Við þurfum að vera vel upplýst um hvað er að gerast þarna. �?g vek athygli á þessu af því að fjölmiðlarnir virðast hafa meiri áhuga á því hve sjaldan Herjólfur kemst til Landeyjahafnar en að hann komist á milli vegna verkfalls undirmanna,�?? sagði Vilhjálmur og bætti við: �??Ferðamálasamtökin, íbúarnir, íþróttafélögin og atvinnulífið allt kalla líka eftir þessari aðkomu stjórnvalda og fullyrða að eins og staðan sé að þróast sé ekki hægt að leysa málin nema með aðkomu stjórnvalda.�??
Hvernig getur þetta gerst?
Páll Valur sagði að ekki væri hægt að skipta sér af kjaradeilum. Hann hvatti jafnframt deiluaðila til að semja sem fyrst og taldi að sumir gerðu sér ekki grein fyrir alvarleika málsins. �??Kona skrifaði grein í Eyjafréttir í dag þar sem hún velti fyrir sér hvernig hefði farið ef Hvalfjarðargöngin hefðu verið illa gerð og það hefði ekki verið hægt að fara í gegnum þau nema kannski tvisvar, þrisvar í viku vegna þess að það væri svo slæmur útblástur eða eitthvað vegna handvammar í Hvalfjarðargöngunum. �?á þyrftu þeir sem þyrftu að nota þau daglega að fara Hvalfjörðinn en yrðu svo rukkuð helmingi meira fyrir að keyra Hvalfjörðinn. �?g er hræddur um að það mundi heyrast hljóð úr horni og fljótt gripið í taumana,�?? sagði Páll og velti því um leið fyrir sér hvernig það gæti gerst að þjóðvegi væri lokað vegna kjaradeilu.
�??Maður veltir fyrir sér hvernig standi á því að svona hlutir geti gerst, ekki síst þegar félagið sem rekur Herjólf er Eimskip sem skilaði á síðasta ári 1.100 milljónum í hagnað og borgaði eigendum sínum 30% arð. �?ess vegna veltir maður fyrir sér hvers vegna í ósköpunum sé svona erfitt að semja við örfáar manneskjur um kauphækkun eða leiðréttingu launa. �?eir eru einungis að fara fram á leiðréttingu launa fyrir farmenn sem var samið um árið 2011. �?að er sorglegt að þessi staða skuli vera uppi í dag og ég get ekkert gert nema hvatt til þess að leysa þetta farsællega svo líf Eyjamanna komist í eðlilegt horf aftur. �?etta er ekki boðlegt.�??

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.