Ekki öruggt en tvö stig í hús
ÍBV náði í kvöld fimm stiga forskot á Val en Eyjamenn eru í öðru sæti Olísdeildarinnar á meðan Valur er í því þriðja. ÍBV lagði HK að velli í kvöld en lokatölur urðu 36:27. Lokatölurnar gefa þó ekki rétta mynd af gangi leiksins því HK veitti ÍBV harða mótspyrnu, var aldrei langt undan þótt ÍBV hefði ávallt verið skrefi á undan. Eyjamenn leiddu lengst af með tveimur til þremur mörkum, allt þar til tíu mínútur voru eftir að leikmenn ÍBV hristu loksins af sér slenið og spiluðu af eðlilegri getu. �?að hefur reyndar gerst áður, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að leikir ÍBV séu nokkuð jafnir í 50 mínútur eða svo en að Eyjamenn séu sterkastir á lokasprettinum. Staðan í hálfleik var 16:14 fyrir ÍBV.
Eyjamenn léku illa í kvöld. �?að er í raun ekkert hægt að draga fjöður yfir það og ef mótherjinn hefði verið sterkari, þá hefði ÍBV aldrei náð í tvö stig. En HK liðið sýndi reyndar í kvöld að í liðinu býr ýmislegt. Bæði lið gerðu reyndar fjölmörg mistök sóknarlega og markvarslan var í algjöru lágmarki. Varnarleikur ÍBV var skásti hlutinn en var þó ekki nógu góður á köflum. En að spila illa og vinna samt eru styrkleikamerki. �?að má líka hugsanlega segja að leikmenn ÍBV hafi ekki mætt fullir ákefðar til leiks enda að spila gegn liði sem ÍBV á að vinna í 9 af hverjum 10 skiptum, jafnvel oftar.
Staðan er nú þannig að ÍBV er enn þremur stigum á eftir Haukum, sem eru efstir. Haukar eru með 29 stig, ÍBV 26 og Valur er í þriðja sæti með 21 stig. Valsmenn eiga reyndar leik til góða en þeir spila gegn Akureyri á morgun, föstudag og geta með sigri minnkað muninn aftur niður í þrjú stig. �?rjár umferðir eru eftir en ÍBV spilar næst gegn ÍR á útivelli í næstu viku, þá gegn Val á heimavelli og svo gegn Haukum á útivelli. Allt eru þetta erfiðir leikir, sérstaklega síðustu tveir en Valsmenn fóru illa með ÍBV í Eyjum síðast þegar liðin mættust.
Mörk ÍBV: Agnar Smári Jónsson 8, Magnús Stefánsson 7, Grétar �?ór Eyþórsson 7, Theodór Sigurbjörnsson 5/2, Róbert Aron Hostert 4, Andri Heimir Friðriksson 3, Guðni Ingvarsson 1, Hallgrímur Júlíusson 1.
Varin skot: Kolbeinn A. Ingibjargarson 6/1, Henrik Eidsvaag 5/1.
Viðtal við Magnús Stefánsson fylgir fréttinni.

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.