Um 2.300 manns búnir að skrifa undir
Nú hafa um 2.300 manns skrifað undir undirskriftalista þar sem deiluaðilar í verkfalli undirmanna Herjólfs eru hvattir til að leysa deiluna og semja. �?jóðvegurinn Herjólfur hefur nú verið meira og minna lokaður í rúmar tvær vikur, skipið hefur til þessa aðeins siglt eina ferð á virkum dögum en ekkert á laugardögum og sunnudögum. Ef allt hefði verið eðlilegt hefði Herjólfur siglt 32 ferðir frá því að verkfallið hófst miðvikudaginn 5. mars. Reyndin er önnur, skipið hefur aðeins siglt 12 ferðir og hafa 20 ferðir því fallið niður. Eins og sjá má er þetta veruleg skerðing á samgöngum Eyjamanna með tilheyrandi afleiðingum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við þetta verður ekki lengur búið og því miður virðist eina lausnin til að laga samgönguvanda Eyjamanna vera sú, að stjórnvöld grípi inn í með lagasetningu á verkfallsaðgerðir.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.