Vil spila sókn fyrir Eyjar frekar en þessa eilífu vörn

Eins og áður hefur komið fram, verður sýslumannsembættunum á Suðurlandi fækkað úr þremur í tvö og lögreglustjóraembættunum úr þremur í eitt. Sýslumaður verður á Selfossi og Vestmannaeyjum en óvíst er hvar lögreglustjóraembættið á Suðurlandi verður staðsett. Ef ekki verður lögreglustjóri staðsettur í Vestmannaeyjum, hefur það talsverð áhrif í bæjarfélaginu eins og Helgi Bragason, hæstaréttarlögmaður lýsti […]

Beðið frétta af loðnuveiðum

Lítið hefur gengið í loðnuveiðum fyrir austan land en í vikunni fannst loðna sunnan við landið, í Meðallandsbugt úti fyrir Skeiðarársandi. �?egar Eyjafréttir slógu á þráðinn til �?lafs Einarssonar, skipstjóra á Heimaey VE í gær, var reyndar lítið að frétta. �??Við erum nýkomnir á miðin og í okkar fyrsta túr síðan í byrjun janúar. �?á […]

Sameina hagsmuni allra

�??�?g held að það láti nærri að með þessu sé verið að leggja grunn að stærri uppbyggingu á hafnarsvæðinu en við höfum séð í áratugi,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri um þá ákvörðun bæjaryfirvalda að gera samkomulag við Vinnslustöð Vestmannaeyja og Ísfélagið og leysa þannig úr ágreiningi fyrirtækjanna tveggja. �??Til að gera það mögulegt munum við […]

Fiskiðjan og skrifstofuhús Ísfélagsins rifin og Friðarhöfn breytt

Búið er að höggva á þann hnút sem hafði myndast milli Ísfélags og Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Málavextir voru þeir að Ísfélagið hugðist fara í miklar framkvæmdir við frystihús sitt sem m.a. fólst í því að byggja inn á götu milli frystihúsanna tveggja. �?etta hugnaðist forráðamönnum Vinnslustöðvarinnar ekki, enda töldu þeir að verið væri að þrengja […]

�?tlum að bæta fyrir bikartapið

ÍBV tekur á móti Val í toppleik Olísdeildar karla en liðin sitja í öðru og þriðja sæti deildarinnar. �?etta er lokaumferð 2. umferðar Íslandsmótsins af þremur en sætaröð eftir aðra umferðina, ræður hvaða liðum ÍBV mætir á heimavelli í þeirri þriðju. Eyjamenn mæta með sært stolt í leikinn eftir tap gegn 1. deildarliði Aftureldingar í […]

Alltaf von og því má aldrei gleyma

Í kvöld, þriðjudaginn 11. febrúar verður opinn borgarafundur um áfengis- og vímuefnavandann í Safnaðarheimilinu og hefst hann kl. 20.00. Á fundinum, sem sagður er verða í tónum og tali, tala �?órarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, Einar Már Guðmundsson, rithöfundur, Rúnar Freyr Gísla og fleiri. Að loknum erindum verður gestum boðið að […]

Kolbrún hefur misst 9 kg

Nú þegar þrjár vikur eru liðnar af raunveruleikaþáttunum The Biggest Loser Ísland sem sýndur er á SkjáEinum, hefur Vestmannaeyjamærin Kolbrún Jónsdóttir misst 9 kg af þyngd sinni, alls 7,5% af upphaflegri líkamsþyngd. Kolbrún hefur staðið sig vel í þyngdarlosun og hefur mest losað sig við 3,7 kg á einni viku en hún keppir í rauða […]

Átti ekki að skipta sér af

Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað dyravörð skemmtistaðar í Vestmannaeyjum af ákæru fyrir líkamsárás. Dómurinn segir að dyravörðurinn hafi ekki beitt öðrum aðferðum en nauðsynlegar voru til þess að yfirbuga mann sem að sönnu átti ekki að skipta sér af störfum dyravarðanna. Dyravörðurinn var ákærður fyrir að hafa tekið manninn, snúið hann niður í götuna og haldið […]

Enn mikið líf í höfninni

Enn er mikið líf í Vestmannaeyjahöfn en súlur og hvalir hafa slegist um síld sem þar hefur verið að finna. Í gær fór hnúfubakur alla leið inn í Friðarhöfn, innst inni í Vestmannaeyjahöfn. Fyrir nokkrum árum voru þar tvær andarnefjur, sem er hvalategund, en þær rötuðu ekki út. Hnúfubakurinn virtist hins vegar vera með allt […]

Tryggjum öfluga þjónustu

�?að fór nú ekki framhjá neinum hvernig valdhroki Sjálfstæðismanna birtist óþægilega á vef Eyjafrétta í síðustu viku þegar umræða um gjaldskrárhækkun leikskólagjalda stóð sem hæst. Við höfum ólíka sýn á það hvert lykilhlutverk Vestmannaeyjabæjar er og hvernig forgangsröðunin á að vera; það er alltaf að koma betur og betur í ljós. �?ó það sé vissulega […]

Álsey VE á leið til Eyja með 700 tonn af loðnu

Álsey VE lét úr höfn í gær og hélt til loðnuveiða. Á facebooksíðu sinni segja þeir veiðina byrja vel í blíðunni í Bugtinni. �?eir fengu tæplega 300 tonn í fyrsta kasti. Eitthvað fengu þeir gefins hjá Birtingi NS, sem var kominn með sinn skammt. Nú eru þeir á Álsey komnir með 700 tonn og eru […]

Hald lagt á nokkuð magni af fíkniefnum

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og kom m.a. upp fíkniefnamál í lok vikunnar þar sem nokkuð magn af fíkniefnum voru haldlögð. �?á var nokkur erill um helgina og þurfti lögreglan að hafa afskipti af gleðskap í heimahúsi sem fór úr böndunum. Annars var frekar rólegt í kringum öldurhús bæjarins. Sl. […]

Sóknarmaður til ÍBV

Jonathan Glenn skrifaði í dag undir eins árs samning við ÍBV. Jonathan kemur frá Trínidad og Tóbagó, eins og kantmaðurinn Dominic Adams, sem samdi í gær til tveggja ára við ÍBV. Jonathan Glenn er hins vegar sóknarmaður en báðir voru þeir til reynslu hjá félaginu á dögunum. �??Jonathan lék með St. Leo háskólanum í Florida […]

Stórfelld líkamsárás og líflátshótanir

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás og brot gegn valdstjórninni, en hann hótaði lögreglumönnum lífláti. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða 460.000 kr. í skaðabætur. �?á er manninum gert að greiða tæpa milljón í sakarkostnað. Ríkissaksóknari ákærði manninn fyrir brot sem hann framdi 15. júlí 2012 í […]

Verkafólk í Vestmannaeyjum sýndi hugrekki og bar ábyrgð

Eftir að Drífandi stéttarfélag ásamt fjölda annarra stéttarfélaga í landinu felldu kjarasamninga þá sem forysta ASÍ og atvinnurekenda gerðu á dögunum hefur nokkuð verið rætt um ábyrgð og skyldur verkalýðsfélaga í landinu. �?g hef rætt við ýmsa hér í Eyjum um þessi mál og hafa skoðanir þeirra verið skiptar. Reyndar hafa þeir sem telja að […]

Veikleikar Eyjamanna komu fram gegn 1. deildarliðinu

ÍBV tapaði í gær í tvíframlengdum leik gegn Aftureldingu í 8-liða úrslitum Coca Colabikarkeppninnar. Leikurinn fór fram í Mosfellsbæ en staðan eftir venjulegan leiktíma var 26:26. Eyjamenn voru hins vegar fjórum mörkum yfir þegar átta mínútur voru eftir en klaufagangur í lokin varð til þess að ÍBV kastaði sigrinum frá sér. Eftir fyrri framlenginguna var […]

Vestmannaeyjahlaupið sjötta vinsælasta hlaup síðasta árs

Vestmannaeyjahlaupið hefur verið valið sjötta besta götuhlaup ársins 2013. �?etta kemur fram í frétt á hlaup.is en keppendur skila inn einkunum eftir hvert hlaup og raðast hlaupin svo eftir einkunnargjöf. �?etta er mjög góður árangur, enda Vestmannaeyjahlaupið frekar nýtt af nálinni en alls voru 54 hlaup sem fengu einkunn. Einkunnargjöfin er margþætt en gefin er […]

Samið við kantmann frá Trínidad og Tóbagó

Karlalið ÍBV í knattspyrnu samdi í gær við kantmanninn Dominic Adams til tveggja ára. Dominic, sem er 25 ára gamall, er fæddur og uppalinn í Trínidad og Tóbagó og lék fyrstu árin í heimalandinu og var m.a. í leikmannahópi U-17 ára landsliðsins, áður en hann fór í háskólaboltann í Bandaríkjunum. Í tilkynningu frá ÍBV kemur […]

Einstök veðurblíða

Einstök blíða hefur einkennt veðrið í Eyjum um helgina, varla að hár hreyfist á höfði þeirra sem það hafa. Egill Egilsson var á ferðinni í morgun og myndaði veðrið – og norðurklettana. Annars segja myndirnar allt sem segja þarf. (meira…)

Minningartónleikar um Ása í Bæ í Hörpu í kvöld

Í kvöld voru minningartónleikar Ása í Bæ haldnir fyrir fullum Eldborgarsalnum í Hörpu. Ási hefði orðið 100 ára 27. febrúar næstkomandi. Tónleikarnir voru sérlega vel heppnaðir. Mikil stemmning og stuð meðal áheyrenda og flytjenda. �?að eru hjónin og Guðrún �?lafsdóttir og Bjarni �?lafur Guðmundsson sem eiga veg og vanda að þessu tónleikahaldi. Í hitteðfyrra stóðu […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.