Eins og áður hefur komið fram, verður sýslumannsembættunum á Suðurlandi fækkað úr þremur í tvö og lögreglustjóraembættunum úr þremur í eitt. Sýslumaður verður á Selfossi og Vestmannaeyjum en óvíst er hvar lögreglustjóraembættið á Suðurlandi verður staðsett. Ef ekki verður lögreglustjóri staðsettur í Vestmannaeyjum, hefur það talsverð áhrif í bæjarfélaginu eins og Helgi Bragason, hæstaréttarlögmaður lýsti í viðtali í Eyjafréttum, sem komu út í gær og má lesa viðtalið í heild sinni í blaðinu.
�??Fyrir mig sem lögmann þá horfir þetta mjög illa við og ég sé hvorki fagleg rök né hagræðingarrök fyrir þessu, einkum með það í huga að það á að vera starfandi sýslumaður áfram í Vestmannaeyjum. Í dag eru starfandi lögmenn hér í Eyjum þrír til fjórir með mikla reynslu af lögmannsstörfum. �?ar af tveir hæstaréttarlögmenn sem allir koma að lögreglumálum á einn eða annan hátt og svo eru tveir löglærðir starfandi hjá embætti sýslumanns. Sýslumaður er jafnframt lögreglustjóri hér í Eyjum,�?? sagði Helgi.
Treystir á þingmenn Eyjamanna
Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að á síðustu 12 árum, hafi hann setið tugi funda, setið í ráðgjafahópi ráðherra, skilað inn þónokkrum minnisblöðum, átt samtöl við þingmenn og ráðherra og áfram mætti telja. �??Allan þennan tíma hef ég fyrst og fremst verið að útskýra landfræðilega sérstöðu Vestmannaeyja. Samt hefur hún ekki breyst á þessum árum frekar en síðustu þrjátíuþúsund ár eða svo. Hingað til hefur náðst skilningur þingmanna á þessu. Síðan gerist það ætíð að fram koma nýjir þingmenn sem fá svo að heyra sömu frasana um hagræðingu á landsbyggðinni og ferillinn byrjar upp á nýtt. �?g bind virkilegar vonir til þess að nefndin sé núna þannig skipuð að skilningur náist. Í nefndinni sitja ma. Unnur Brá, Páll Valur Björnsson, Vilhjálmur Árnason og Haraldur Einarsson sem öll eru þingmenn okkar Eyjamanna. �?g á bágt með að trúa því að þau láti það gerast á sinni vakt að forræði yfir löggæslu í Eyjum verði flutt á fastalandið,�?? sagði Elliði sem sat í morgun fund Alsherjar- og menntamalanefndar Alþingis í morgun.
�??Fundurinn í morgun gekk að mínu mat vel. �?ingmenn hlustuðu og spurðu. �?eir sem ekki sitja fyrir suðurkjördæmi lögðu sig fram um að skilja hvernig það er að búa á Eyju þar sem samgöngur liggja niðri í 10 til 12 tíma á sólarhring þegar best lætur. �?ingmenn í okkar kjördæmi þekkja það hinsvegar og sá skilningur kom fram á fundinum.�??
Hefurðu trú á að þessi málflutningur beri árangur?
�??Já ég hef trú á því að þessi varnarbarátta skili sér. Karl Gauti sýslumaður hefur staðið sig frábærlega í því að sýna fram á mikilvægi embættisins á faglegan máta. �?á höfum við mjög notið góðs af því að Páley Borgþórsdóttir formaður bæjarráðs var um árabil fulltrúi sýslumanns og Gunnlaugur Grettisson skrifstofustjóri embættisins. �?au hafa því komið að borðinu með djúpa þekkingu sem leitt hefur til aukins skilnings. Svo er ég nú reyndar orðin hundleiður á því að vera ætíð að spila vörn hvað þjónustu ríkisins varðar og þá ekki síst þegar um er að ræða grunnþjónustu eins og löggæslu, heilbrigðisþjónustu og menntun. Nú er komið að því að spila sókn. �?að er algerlega fáránlegt að horfa til þess að það skulu vera 33 íbúar á bak við hvert opinbert starf hér í Eyjum þegar það eru 13 íbúar á bak við hvert starf í Árborg, 15 íbúar á bak við hvert starf í Skagafirði og áfram má telja. �?etta er greitt úr sameiginlegum sjóði og svona misskiping gengur náttúrulega ekki,�?? sagði Elliði og vísaði í töfluna hér að neðan.

�??Í staðinn fyrir að að þurfa ætíð að vera að spila vörn eigum við Eyjamenn nú heimtingu á því að hingað verði flutt opinber störf og stofnanir sem þar með auðga vinnumarkaðinn og efla virðisaukandi þjónustu. Í því samhengi vil ég meðal annars horfa til þess að Hafrannsóknarstofnun verði flutt til Vestmannaeyja. Sú stofnun á betur heima í nábýli við öflugasta sjávarútveg á landinu en hótel og tónlistahallir, með fyllstu virðingu fyrir þeirri starfsemi.�??