Samið við kantmann frá Trínidad og Tóbagó
Karlalið ÍBV í knattspyrnu samdi í gær við kantmanninn Dominic Adams til tveggja ára. Dominic, sem er 25 ára gamall, er fæddur og uppalinn í Trínidad og Tóbagó og lék fyrstu árin í heimalandinu og var m.a. í leikmannahópi U-17 ára landsliðsins, áður en hann fór í háskólaboltann í Bandaríkjunum. Í tilkynningu frá ÍBV kemur fram að leikmaðurinn hafi verið boðaður á æfingar hjá ensku félögunum Wolverhampton Wanderers, Birmingham City og Watford.
�??Í Bandaríkjunum hefur hann spilað í PDL deildinni m.a. með Vermont Voltage. Dominic kemur til ÍBV eftir að hafa verið til reynslu hjá félaginu fyrir stuttu þar sem hann lék vel m.a. gegn Haukum í Fótbolti.net mótinu og í vináttuleik gegn Val. Dominic er hraður og duglegur kantmaður með góða boltameðferð sem líður jafnvel hvort sem er á hægri eða vinstri kanti. ÍBV væntir mikils af Dominic og býður hann velkominn til félagsins. Töluverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópi ÍBV frá í fyrra og það er ætlun og metnaður félagsins að styrkja leikmannahópinn enn frekar á næstunni.�??

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.