Minningartónleikar um Ása í Bæ í Hörpu í kvöld
Í kvöld voru minningartónleikar Ása í Bæ haldnir fyrir fullum Eldborgarsalnum í Hörpu. Ási hefði orðið 100 ára 27. febrúar næstkomandi. Tónleikarnir voru sérlega vel heppnaðir. Mikil stemmning og stuð meðal áheyrenda og flytjenda. �?að eru hjónin og Guðrún �?lafsdóttir og Bjarni �?lafur Guðmundsson sem eiga veg og vanda að þessu tónleikahaldi. Í hitteðfyrra stóðu þau fyrir minningartónleikum um Oddgeir Kristjánsson, á síðasta ári stóðu þau að tónleikunum Yndislega Eyjan mín, þar sem Eyjalögin voru í hávegum og nú minningartónleikar um Ása. Eiga þau heiður skilinn fyrir áræði, dug og framtak, að halda þessum menningararfi Vestmannaeyja hátt á lofti. Ritstjórn Eyjafrétta eins og hún lagði sig var á Ásatónleikunum og í næsta blaði E yjafrétta verða tónleikunum gerð góð skil.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.