Guðmundur orðinn leikmaður Sarpsborg 08

Guðmundur Þórarinsson, sem lék með ÍBV síðustu tvö tímabil, hefur nú skrifað undir samning hjá norska félaginu Sarpsborg 08 til ársins 2015. Félagið kynnti Guðmund sem leikmann sinn í dag og birti við hann viðtal á heimasíðu sinni. (meira…)
Ísfélag óskar eftir geymslusvæði á Kleifasvæðinu

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar í síðustu viku, lá fyrir ósk Ísfélags Vestmannaeyja hf. vegna geymslulóðar á Kleifum austan upptökumannvirkja. Ráðið samþykkir að úthluta Ísfélagi Vestmannaeyja hf. 1760m2 geymslusvæði á Kleifum til tíu ára. Ráðið leggur ríka áherslu á að gengið verði frá svæðinu á snyrtilegan hátt og hluti svæðis verði girtur af. (meira…)
ÍBV mætir B-liðinu

Athyglisverðasti leikur 16-liða úrslitum Símabikars karla er vafalaust leikur ÍBV og ÍBV B en dregið var í hádeginu. Með B-liðinu leika þjálfarar ÍBV, þeir Erlingur Richardsson og Arnar Pétursson en þetta er annað árið í röð sem Erlingur spilar gegn lærisveinum sínum, þar sem hann lék með B-liðinu í fyrra gegn HK, sem hann þjálfaði […]
Gömlumennirnir lögðu hið bráðefnileg lið 2. flokks ÍBV

Í gær fór fram úrtaksæfing hjá B(etra) liði ÍBV. Hluti af æfingunni var leikur við hins stórskemmtilega og öfluga 2. flokks ÍBV sem þykir með þeim sterkari á landinu. Ekki þarf að efast um að það mat láti nærri enda töpuðu unglingarnir ekki nema 17 – 24 fyrir B(etra) liðinu. Gömlu mennirnir fóru bratt af […]
Kári tryggði Wetzlar sigur á Füchse Berlin

Kári Kristján Kristjánsson átti ótrúlegan leik þegar að Wetzlar vann frábæran útivallarsigur á sterku liði Füchse Berlin, 28-27, í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Kári Kristján skoraði fjögur síðustu mörk Wetzlar, þar af sigurmarkið rúmri mínútu fyrir leikslok. Alls skoraði hann sjö mörk í leiknum. (meira…)
Með nýrri ferju og endurbótum verður hún heilsárshöfn

Frá byrjun apríl hefur verið siglt samfellt milli Eyja og Landeyjahafnar og er allt útlit fyrir að svo verði út nóvember. Ríflega 280 þúsund farþegar hafa farið með Herjólfi það sem af er ári eða um 120% fleiri en árið 2009. Eftir því sem lengra hefur liðið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur dregið úr sandseti […]
�?að leiðinlegasta sem ég hef lent í

Það hefur lítið farið fyrir Eiði Aroni Sigurbjörnssyni, knattspyrnumanninum efnilega úr Vestmannaeyjum, eftir að hann yfirgaf ÍBV í ágúst á síðasta ári og gerði fjögurra ára samning við Örebro. Eiður, sem er 22 ára gamall varnarmaður, kom við sögu í 7 leikjum með liði Örebro í fyrra en á nýafstaðinni leiktíð lék hann ekki eina […]
Lokað í Straum

Vegna viðgerða á gólfi í Þvottahúsinu Straumi, verður fyrirtækið lokað í dag, miðvikudaginn 21. nóvember. Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á óþægindunum sem geta skapast við þetta en stefnt er að opna strax í fyrramálið. (meira…)
�?rtaksæfing B-liðsins á morgun

B-lið ÍBV í handbolta tryggði sér með glæsibrag sæti í 16 liða úrslitum en liðið sat hjá í fyrstu umferð. B-liðs einvaldurinn Daði Pálsson boðar til úrtaksæfingar á morgun, miðvikudag klukkan 17:30, þar sem þjálfari liðsins, bæjarstjórinn Elliði Vignisson mun meta eiginleika hvers leikmanns eftir þyng, gæðum og aldri. Æfingin felst í því að leikið […]
Hermann lék með ÍBV um helgina

Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson, þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu, lék í fyrsta sinn opinberan leik með félaginu um helgina í heil fimmtán ár. ÍBV lék fyrstu tvo leiki sína í Íslandsmótinu í Futsal, annarsvegar gegn Aftureldingu og hins vegar gegn Þrótti. ÍBV vann báða leikina, 6:0 gegn Þrótti og 9:6 gegn Aftureldingu en seinni tveir leikir […]
Íris á þing

Íris Róbertsdóttir, grunnskólakennari í Vestmannaeyjum og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók í dag sæti á Alþingi. Íris leysir Unni Brá Konráðsdóttur af hólmi en þetta er í þriðja sinn sem Íris tekur sæti á Alþingi. Fyrst komst hún á þing 2010 og svo aftur í maí 2011. (meira…)
Kærir dyravörð eftir átök

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og nokkur erill í kringum skemmtistaði bæjarins um helgina. Nokkuð var um stympinga og þurftu fjórir að leita til læknis vegna áverka sem þeir fengu. Ein líkamsárás var kærð eftir skemmtanahald helgarinnar en þarna hafði einn af gestum, eins af veitingastöðum bæjarins, lent […]
Af hverju ekki í Landakirkju?

Sl. fimmtudag fór ég og sá mynd Baltasars Kormáks, Djúpið, sem byggð er á hinu hörmulega sjóslysi sem hér varð 1984. Myndin var stórmögnuð í alla staði en eitt sló mig sem fyrrverandi meðhjálpara Landakirkju til 18 ára. Það var atriðið í minningarathöfninni um þá sem fórust, þar var myndin frekar brotin og það truflaði […]
Hulda Rós býður sig fram í 6. sæti
Hulda Rós Sigurðardóttir, meistaranemi í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar. Sækist hún eftir stuðningi í sjötta sæti listans. (meira…)
Eyjamenn í miklum vandræðum með HK2

Karlalið ÍBV í handbolta lék gegn HK 2 í fyrstu umferð bikarkeppninnar í dag en leikurinn fór fram í Kópavoginum. Í gærkvöldi lék liðið gegn Selfossi í nágrannaslag 1. deildarinnar og sjálfsagt hefur sá leikur setið í leikmönnum ÍBV. En engu að síður hefðu Eyjamenn átt að vinna fyrirhafnarlítinn sigur en annað kom á daginn. […]
Stelpurnar áttu aldrei möguleika gegn Val

Kvennalið ÍBV mætti Íslands- og bikarmeisturum Vals á útivelli í síðustu umferð N1 deildar kvenna á þessu ári. Skemmst er frá því að segja að ÍBV átti aldrei möguleika í leiknum því Valur sigraði með tólf mörkum, 34:22, eftir að hafa verið níu mörkum yfir í hálfleik 17:8. (meira…)
Flokksval í fullum gangi

Enn er hægt að kjósa í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík og Suðurkjördæmi. Kjörstöðum í Suðurkjördæmi var lokað klukkan 17, en hægt verður að kjósa á netinu til kl. 18. Þar eru 3.500 á kjörskrá og höfðu tæplega 1.500 kosið kl. 17. (meira…)
Fréttir eins og facebook fyrri tíma

Haraldur Halldórsson, starfsmaður Safnahúss Vestmannaeyja, hefur undanfarna mánuði unnið hörðum höndum við að skanna tölublöð Frétta. Samstarfssamningur er í gildi milli Vestmannaeyjabæjar og Eyjasýnar, sem gefur út vikublaðið sem í dag heitir Eyjafréttir en í náinni framtíð verður hægt að nálgast öll tölublöð Frétta og Eyjafrétta á vefsíðu blaðsins, Eyjafréttir.is og á Heimaslóð.is. Um er […]
�?að skiptir máli að hafa kraftmikla Eyjamenn á Alþingi

Kæru Eyjamenn. Senn líður að flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, en það fer fram dagana 16. og 17. nóvember nk. Í flokksvalinu þurfa flokksfélagar og stuðningsmenn Samfylkingarinnar að kjósa minnst fjóra frambjóðendur. En í öllu flokksvali og prófkjörum eru margir kallaðir en fáir útvaldir. Ég gef kost á mér í 3. sætið á lista Samfylkingarinnar í […]
Góð verk sem ganga fram

Ánægjulegasti þátturinn af starfi í stjórnmálum og á Alþingi er þegar góð verk heima í héraði ganga fram. Að ná að koma verkefni, sem skiptir miklu, af stigi hugmyndar inn á fjárlög og þar með að veruleika. Á þeim stundum finnur maður glöggt að vinnan skiptir máli og sterk tengsl við fólkið heima fyrir hafa […]