Silja Dögg sækist eftir 2. sæti Framsóknarflokksins

Silja Dögg Gunnarsdóttir, skjalastjóri og aðstoðarmaður framkvæmdastjórnar HS Orku og varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. (meira…)

Vilhjálmur Árni sækist eftir 4. sæti á lista Sjálfstæðismanna

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 4.sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ég býð fram krafta mína til að vinna að hagsmunum fjölskyldufólks. Ég mun beita mér fyrir frelsi einstaklingsins til athafna landsmönnum öllum til heilla. Á Alþingi hyggst ég vinna að auknum atvinnutækifærum á landsbyggðinni og styrkja þannig heimilin. (meira…)

Vel er mætt til vinafundar

Sunnudaginn 14. október, kl. 14, blása sjö átthagakórar til mikilla tónleika í Háskólabíói. Undir­búningur fyrir tónleikana hefur staðið yfir síðan í vor. Þetta eru Breiðfirðingakórinn, Húna­kórinn, Skagfirska Söngsveitin, Sönghópur Átthaga­félags Vestmanneyinga, Árnesinga­kórinn, Söng­félag Skaftfellinga og Kór Átt­haga­félags Strandamanna en allir eru þeir blandaðir kórar. Hver hópur flytur þrjú lög en í lok tónleikanna sameinast kórarnir […]

�?ruggur sigur ÍBV í fyrsta leik

ÍBV lagði Víking Ólafsvík að velli í dag en lokatölur urðu 61:97. Eins og lokatölurnar gefa til kynna, var sigur Eyjamanna mjög sannfærandi en staðan eftir 1. leikhluta var 11:21, eftir 2. leikhluta 24:49, eftir 3. leikhluta 44:67 og lokatölur eins og áður sagði 61:97. (meira…)

Hermann skrifaði undir tveggja ára samning

Hermann Hreiðarsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning hjá ÍBV. Munnlegt samkomulag þess efnis lág fyrir fljótlega eftir að leiðir ÍBV og Magnúsar Gylfasonar skildu en Hermann lék upp í gegnum alla yngri flokka ÍBV og svo með meistaraflokki, áður en hann var seldur til Crystal Palace haustið 1997. (meira…)

Húsin í hrauninu

Í dag, laugardaginn 16. október kl. 16-17 mun Arnar Sigurmundsson kynna í Einarsstofu í Safnahúsinu afmælis­verkefni Visku sem hann ásamt Þórunni Jónsdóttur mun stýra. Námskeiðið ber heitið Húsin í hrauninu og er haldið í tilefni af því að brátt eru 40 ár liðin frá upphafi og lokum eldgossins í Heimaey 1973. Þá fagnar Viska tíu […]

Vantar hressa Eyjakonu í kynningarherferð

Ásdís Loftsdóttir, fatahönnuður sem rekur verslunina Studio 7 við Heiðarveg auglýsti í síðasta tölublaði Frétta, undir fyrirsögninni: „Er smá tískugen í þér?“ Blaðamanni lék forvitni á, hvað væri verið að auglýsa. (meira…)

Varla klárað fyrir áramót

Á dögunum var útrásarlögn frá­veitu­kerfis Vestmannaeyjabæjar, sem unnið hefur verið að í sumar, komið fyrir út frá Eiði. Lögnin nær rúma 200 metra út frá landi og ligg­ur niður á um 11 metra dýpi. Ólafur Þór Snorrason,fram­kvæmda­stjóri Umhverfis- og framkvæmda­sviðs segir að verkið hafi gengið mjög vel. (meira…)

Ísfélagið selur �?orstein �?H

Ísfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið að selja frysti- og nótaskipið Þorstein ÞH. Enginn kvóti skiptir um hendur við kaupin, þar sem kaupendur eru í Nýja-Sjálandi. Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins staðfesti þetta í samtali við Eyjafréttir í dag. (meira…)

Nýttu hádegisæfinguna til að týna rusl

Karlalið ÍBV í handbolta nýtti hádegisæfinguna í dag vel í þágu bæjarfélagsins en í stað þess að vera inn í íþróttahúsinu og æfa leikkerfi, skokkuðu strákarnir niður að Klifi og týndu rusl. Eftir nokkra rokdaga í haust hefur talsvert að rusli safnast fyrir á svæðinu en strákarnir sáu til þess að náttúra Eyjanna skartar sínu […]

Árni gefur kost á sér í 1. sæti í Suðurkjördæmi

Til þess að taka af öll tvímæli, lýsi ég undirritaður því yfir, að ég gef kost á mér í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Undanfarin tæp fjögur ár hafa verið nánast ónýt í íslenskum stjórnmálum vegna aðgerða- og úrræðaleysis stjórnvalda til mikils ama og óhamingju. (meira…)

Verndar ESB Vestmannaeyjar?

Össur Skarphéðinsson er mikill maður í mörgum skilningi þeirra orða. Væri hann söguhetja í skáldsögu væri honum sennilega lýst sem hnyttnum og kankvísum karli sem öllum vill vel. Ekki er ólíklegt að í persónulýsingu væri tekið fram að sjaldnast léti hann sannleikann skemma góða sögu. Sem slíkur er Össur í miklu uppáhaldi hjá okkur Eyjamönnum […]

Stikkpillan

Maður nokkur hafði verið hjá lækninum sínum og fengið hjá honum stikkpillur. Læknirinn aðstoðaði hann við að setja inn fyrstu pilluna en um kvöldið átti eiginkonan að sjá um það. Um kvöldið áður en hjónin fóru að sofa þurfti konan að setja stikkpilluna inn. Hún lagði aðra höndina á öxlina á eiginmanni sínum og smeygði […]

Svei attan, Róbert Marshall

Sæll Róbert. Í Eyjafréttum 27. sept­ember hælir þú þér í hvert reipi og segist hafa barist fyrir hags­munum Eyjanna. Í ­þessari sömu sjálfs­hólsgrein finnst þér sjálfsagt að ráðast á bæjarstjórn Vest­mannaeyja, fyrir að standa með íbúunum, en það gerir þú með því, að ég held vísvit­andi, að skrökva að bæjaryfirvöld vilji ekki neinu breyta, hvað […]

Frábær Færeyjaheimsókn að baki og Eyjakvöld í kvöld

Eftir einstaklega velheppnaða heimsókn Færeyinga frá Götu, vill Blítt og létt hópurinn þakka öllum þeim sem komu að þessum viðburði. Gestgjafarnir sem opnuðu heimili sín fyrir gestunum, Grími kokki og hans liði, Vikingtours, RIBSafari, Kiwanis og Bjarnareyingum. Síðast en ekki síst viljum við þakka styrktaraðilum og Vestmannaeyjabæ sem kom að þessu af myndarskap og buðu […]

Sótt að Vestmannaeyjum úr ýmsum áttum

Elliði Vignisson, bæjarstjóri hafði ekki heyrt af sölu útgerðarfyrirtækis í Eyjum með hátt í þúsund þorskígildistonn, eins og fullyrt var í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær. Elliði segist þó óttast það óöryggi sem að íbúum Vestmannaeyja standi. „Líkur eru til þess að 12. greinin -sem ætlað var að skapa byggðum aukið öryggi- sé í raun staðlaus […]

Portland til sölu

Útgerðarfyrirtækið Kæja ehf, sem gerir út stálskipið Portland VE, er til sölu með um 250 þorskígildistonnum. Benóný Benónýsson, aðaleigandi útgerðarinnar segir ástæðuna fyrir hugsanlegri sölu einfalda, litlu útgerðarfyrirtækin eins og fyrirtæki hans, ráði einfaldlega ekki við aukið veiðigjald sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir lagði á sjávarútveginn á nýhöfnu kvótaári. (meira…)

Fréttir verða Eyjafréttir

Eins og fram kom í síðasta tölu­blaði hefur Júlíus G. Ingason tekið við ritstjórn Frétta af Ómari Garðarssyni. Við þessi tímamót hefur verið ákveðið að breyta nafni blaðsins í Eyja­fréttir. Reglu­lega hefur gætt misskilnings á nafni Frétta. Eyjafréttir er orðið sterkt vörumerki vegna vefmið­ilsins Eyja­fréttir.is, sem sama fyrirtæki hefur haldið úti frá árinu 2000. Með […]

Um fjörutíu lömb drápust í Elliðaey

Undanfarið hefur fé verið sótt í úteyjar. Flestir fjáreigendur bera sig vel og segja heimtur með ágætum. Aðra sögu er þó að segja úr Elliðaey. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta fundust tæplega fjörutíu kindur dauðar þar á dögunum. Mest voru það lömb sem láu um eyna, en þó eitt­hvað af eldra fé. (meira…)

Tryggvi Guðmunds hefur rætt við Val og �?rótt

Tryggvi Guðmundsson hefur átt í viðræðum við bæði Val og Þrótt samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Samningur Tryggva við ÍBV rennur út í lok mánaðarins en hann fékk fyrr í sumar leyfi hjá félaginu til að ræða við önnur félög. Þó er ekki alveg útilokað að Tryggvi verði áfram hjá ÍBV en Hermann Hreiðarsson tók við þjálfun […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.