Unnu alla leikina og komust upp um riðil

Strákarnir í 8. flokki léku í 4. og síðustu umferð Íslandsmótsins um helgina en leikið var í Eyjum. ÍBV gerði sér lítið fyrir og vann alla sína leiki og komst þar með upp um riðil. Sigurður G. Benónýsson gerði sér lítið fyrir og skoraði 123 stig eða, 30,75 stig í leik. Strákarnir byrjuðu á að […]

�?vissa með rútuferðir

Margir velta fyrir sér rútuferðum í Landeyjahöfn. Ekki liggja fyrir hugmyndir um fjölda ferða og hvað þær koma til með að kosta. Elliði Vignisson, bæjarstjóri, vísar þar á Vegagerðina. „Ráða­menn hafa þó rætt að ekki verði um kostnaðarauka að ræða, miðað við það sem er nú í tengslum við siglingar í Þorlákshöfn. Það kostar í […]

Áhersla lögð á að standa vörð um grunnþjónustu

„Til þess að vinnan verði markviss og nýtist öllum aðilum sem vinna að því að vernda grunnþjónustu Heil­brigðisstofnunar Vestmannaeyja (HV) þarf bæði samstarf um verkið og aðgengi að upplýsingum og sérfræðiþekkingu,“ sagði Elliði Vignis­son, bæjarstjóri sem bæjarráð fól að ráðast í úttekt á HV. Bæði hvað varðar rekstrarþætti og samfé­lagslegt mikilvægi stofnunarinnar. „Og verði það […]

Hermann að falla í fimmta sinn

Það blæs ekki byrlega fyrir félag Hermanns Hreiðarssonar en félagið hefur glímt við hin ýmsu vandamál í vetur. Á dögunum voru níu stig dregin af félaginu vegna fjárhagserfiðleika þess en Portsmouth kærði þann úrskurð. Nú hefur úrskurðurinn verið staðfestur af hærra dómsstigi og er Portsmouth því 17 stigum frá örugg sæti í úrvalsdeild, þegar aðeins […]

Tvær úr ÍBV á leið til Rússlands

Þær Elísa Viðarsdóttir og Kristín Erna Sigurlásdóttir eru á leið til Rússlands með U-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Eyjastúlkurnar tvær voru valdar í 18 manna hóp Ólafs Þórs Guðbjörssonar, landsliðsþjálfara en liðið tekur þátt í milliriðli Evrópumóts landsliða. Ísland leikur í sterkum riðli með Spánverjum, Rússum og Tékkum. (meira…)

Ábyrgar lánveitingar

Fjármálakreppan sem skekið hefur fjármálakerfi heimsbyggðarinnar undanfarna mánuði á sér margar orsakir. Mikilvægt er að greina þær þannig að hægt sé að draga lærdóm af öllu saman og gera nauðsynlegar breytingar til að draga úr líkum þess að kreppa sem þessi endurtaki sig. Almennt ríkir það viðhorf að rót kreppunnar megi rekja til mikillar útbreiðslu […]

Eyjamenn fengu frest til að klára keppnisleyfið

ÍBV fékk viku frest til að klára sín mál varðandi þátttökuleyfi í Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar. 24 félög í tveimur efstu deildunum skiluðu inn umsóknir og voru gefin út þátttökleyfi til handa 16 félögum. Fimm félög í úrvalsdeild fengu viku frest en auk ÍBV voru það Selfoss, Breiðablik, Keflavík og Haukar. „Þetta eru smámál […]

Fréttir koma út á morgun, fimmtudag

Nú styttist í að fyrsta fermingin fari fram í Eyjum en laugardaginn 27. mars er fyrsta fermingin í Landakirkju. Fréttir hafa ávallt gefið út myndarlegt Fermingarblað á þessum tímamótum ungmennanna og er árið í ár engin undantekning. Afar veglegt Fermingarblað fylgir Fréttum að þessu sinni. Af þeim sökum frestast útgáfa blaðsins um einn sólarhring. (meira…)

Vertíðar stemmning á Lundanum um helgina

Um helgina 19. og 20. mars mun hljómsveitin Mistur skemmta gestum Lundans. Hér eru á ferðinni hljómsveit frá Hveragerði og ætlum við að hafa rífandi vertíðarstemmingu þar til dagur rís. Frítt er inn á Lundann fram að miðnætti, en eftir það kostar 1000 kr inn. (meira…)

Enn eitt auðlindaránið yfirvofandi!

Baráttan um sameiginlegar auðlindir Íslendinga heldur áfram. Næsta auðlind til þess að verða hrægömmunum að bráð er makríllinn. Nú krefjast hagsmunaaðilar þess að þeim verði úthlutaður (lesist gefinn) kvóti í makríl upp á 130.000 tonn. Þetta skal gerast endurgjaldslaust og kvótum skal úthlutað ótímabundið eins og venja er þegar nytjastofnum Íslands er rænt af þjóðinni. […]

Dólgarnir í Músíktilraunum í kvöld

Eyjatríóið Dólgarnir taka þátt í Músíktilraunum í kvöld en sveitina skipa þeir Geir Jónsson, 14 ára söngvari og gítarleikari, Gísli Rúnar Gíslason, 16 ára trommari og Arnar Geir Gíslason, 12 ára bassaleikari. Ellefu sveitir keppa um að komast áfram í úrslitakvöld Músíktilrauna og aldrei að vita nema að Dólgarnir feti í fótspor Foreign Monkeys, sem […]

Loðnuslúttið fer fram í Höllinni Vestmannaeyjum

Það verður mikið um dýrðir í Höllinni á laugardaginn kemur en þá mun gleði og skemmtisveitin Vinir Vors og Blóma mæta á Eyjuna og skemmta okkur Eyjamönnum að sinn alkunnu snilld. Síðast þegar þeir voru hjá okkur var stemmning slík að elstu menn muna vart eftir jafn miklu stuði í Höllinni. Þakið ætlaði að rifna […]

Enn óljóst með Tonny

Enn er ekki ljóst hversu alvarleg meiðsli miðjumannsins Tonny Mawejje eru en hann meiddist í leiknum gegn HK á sunnudaginn. Óttast var að hann hefði slitið krossband í hnénu en Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV segir að eftir læknisskoðun gærdagsins bendi allt til þess að krossband sé ekki slitið. Hins vegar gæti leikmaðurinn engu að síður […]

Siggi búinn að spila 300 deildarleiki fyrir ÍBV

Sigurður Bragason, fyrirliði handknattleiksliðs ÍBV spilaði um helgina sinn 300. deildarleik fyrir ÍBV. Það gerði hann í afar mikilvægum sigurleik gegn ÍR í 1. deild Íslandsmótsins sem Eyjamenn unnu 27:35 og stigu um leið mikilvæg skref í átt að því að tryggja sér sæti í umspili um laust sæti í úrvalsdeild. Auk leikjanna 300 í […]

ÍBV fær fyrrum framherja Dynamo Kiev á reynslu

Úkraínski framherjinn Denis Sytnik kemur í dag til ÍBV á reynslu en hann mun vera til skoðunar hjá liðinu næstu dagana. Denis er uppalinn hjá Dynamo Kiev í heimalandi sínu Úkraínu en hann mun núna reyna að heilla Eyjamenn. Eyjamenn hafa verið í leit að framherja og þeir hafa í vetur skoðað bæði Letta og […]

Tekinn með steratöflur við komuna til Eyja

Síðdegis á föstudag var farþegi sem var að koma með flugi frá Reykjavík stöðvaður vegna gruns um að hann væri með fíkniefni meðferðis. Við leit fundust engin fíkniefni en hann reyndist vera með steratöflur meðferðis. Viðkomandi viðurkenndi að eiga töflurnar og var lagt hald á þær. Þá var ráðist á leigubílstjóra um helgina. Farþegi var […]

Samstaða þekkingarlausra þingmanna?

Það er athyglisvert að fylgjast með þjóðmálaumræðunni um þessar mundir. Kallað er eftir samstöðu, að stjórn og stjórnarandstaða leggi niður vopnin og sameinist um þau mál sem brenna á þjóðinni. Traust á Alþingi mælist í sögulegu lágmarki og virðing ýmissa talsmanna atvinnulífsins á stjórnmálamönnum er augljóslega engin. (meira…)

Aðeins 108 dagar í siglingar í Landeyjahöfn

Í dag eru aðeins 108 dagar í að siglingar í Landeyjahöfn hefjist en framkvæmdir eru nú á fullu við smíð hafnarinnar. Styrmir Gíslason sendi ritstjórn Eyjafrétta nokkrar myndir frá framkvæmdunum en eins og sjá má er unnið að því hörðum höndum að siglingar hefjist á réttum tíma, eða 1. júlí næstkomandi. Stærsta baráttan er nú […]

Mawejje ekki meira með?

Úganski miðjumaðurinn Tonny Mawejje meiddist illa í leik með ÍBV gegn HK í Lengjubikarnum í dag. Mawejje lenti illa og var borinn af leikvelli en óttast er að hann hafi jafnvel slitið krossband í hnénu. Ef svo er, mun hann varla spila knattspyrnu næstu níu mánuðina og er því jafnvel úr leik hjá ÍBV. Það […]

Góður útisigur Eyjamanna

Eyjamenn unnu afar mikilvægan sigur á útivelli í gær þegar liðið sótti ÍR heim. ÍR-ingar, sem Viggó Sigurðsson, þjálfari tók við á dögunum, hafa verið að sækja í sig veðrið og með sigri hefðu þeir getað ógnað Eyjamönnum í þriðja sæti. En leikmenn ÍBV voru mjög ákveðnir og innbyrtu átta marka sigur, 27:35. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.