Enginn leikur hjá stelpunum
Það virðist ætla reynast Hafnafjarðarliðunum í kvennahandboltanum erfitt að koma til Eyja enda um gríðarlegt ferðalag að ræða, akstur á flugvöll í Reykjavík og 25 mínútna flugferð. Þetta er í annað sinn í vetur sem lið gefur leik gegn kvennaliði ÍBV, fyrst voru það Haukar og nú hitt Hafnafjarðarliðið FH. Þess má geta að leikmenn […]
Andri með þrennu

Karlalið ÍBV í knattspyrnu burstaði Þrótt Reykjavík þegar liðin áttust við í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Lokatölur urðu 6:1 en Andri Ólafsson, fyrirliði liðsins fór fyrir sínu liði og skoraði þrennu í leiknum. Tryggvi Guðmundsson fór einni mikinn í leiknum þótt hann kæmist ekki á blað markaskorara en Tryggvið lagði upp þrjú mörk fyrir félaga sína. […]
Samstaða um sókn?
Við Íslendingar eigum mörg sóknarfæri. Hér býr ung og vel menntuð þjóð, við eigum sterkt lífeyrissjóðakerfi og búum að traustum innviðum samfélagsins. Við eigum gríðarlegar auðlindir í formi fiskjar, orku, vatns, ræktunarlands og hreinleika. Þessa styrkleika eigum við að nýta til þess að skapa þau skilyrði að einstaklingar geti með framtaki sínu skapað sér tækifæri […]
25 ár síðan Guðlaugssundið var fyrst þreytt

Hið árlega Guðlaugssund stendur nú yfir í sundlaug Vestmannaeyja en alls taka 69 manns þátt í sundinu í ár. Sundið er þreytt til að minnast ótrúlegs þrekvirkis Guðlaugs Friðþórssonar, sem synti um sex kílómetra leið í ísköldum sjónum til Eyja eftir að Hellisey VE 503 sökk austan við Heimaey 11. mars 1984. Strax árið eftir […]
Fermingarblað Frétta í næstu viku
Vorið er skammt undan og einn af vorboðunum ljúfu, fermingarnar standa fyrir dyrum. Fermingin er stór viðburður í lífi ungs fólks og í minningum hvers og eins fermingarbarns, er dagurinn að sjálfsögðu afar eftirminnilegur. Að gefa gjöf í tilefni fermingardagsins er gamall og gróinn íslenskur siður. Fólk klæðir sig upp og býður til veislu. Fréttir […]
Létu drauminn rætast

Að ferðast um til fjarlægra landa er draumur margra en fæstir fá tækifæri til að láta drauminn rætast. Þau Hafdís Guðnadóttir og Eyþór Björgvinsson, ungt Eyjapar, lét sig ekki nægja að dreyma um ferðina, heldur létu þau drauminn rætast. Síðan í janúar hafa þau ferðast um fjarlæg lönd í Asíu og Eyjaálfu og lent í […]
Kári Kristján og félagar í annað sæti
Kári Kristján Kristjánsson og samherjar hans í Amicitia Zürich komust upp í annað sæti svissnesku A-deildarinnar í handknattleik í gærkvöldi þegar þeir unnu TV Endingen, 35:27, á heimavelli. Kári Kristján skoraði fjögur mörk fyrir Amicitia í gær. Liðið hefur nú 32 stig í öðru sæti, er níu stigum á eftir Kadetten sem Björgvin Páll Gústavsson, […]
�?tvarpsstjóri á laugardagsfundi í Ásgarði

Páll Magnússon, útvarpsstjóri og Eyjamaður verður gestur á laugardagsfundi Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Fundurinn hefst klukkan 11:00 og er öllum opinn. Á boðstólum verður súpa og brauð fyrir þá sem það vilja. Páll Magnússon útvarpsstjóri er fæddur 17. júní 1954. Hann er sonur Magnúsar H. Magnússonar fyrrverandi bæjarstjóra og Filippíu Mörtu Guðrúnu Björnsdóttur. Páll var fréttastjóri […]
Smartmedia á Netinu2010 í Smáralindinni um helgina

Stórsýningin Netið 2010 verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind dagana 12-14. mars. Markmið sýningarinnar er að kynna nýjungar, þjónustu og möguleika sem eru í boði á íslenskum netmarkaði. Smartmedia verður með bás á sýningunni þar sem fyrirtækið verður með kynningu á þeim vörum og þjónustu sem í boði eru hjá Smartmedia. Smartmedia verður með frábær tilboð […]
Lögðu hald á um 200 gr. af amfetamíni
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði í gær hald á um 200 gr. af ætluðu amfetamíni. Efnið fannst í bifreið sem kom með Herjólfi um miðjan dag í gær en lögreglan stöðvaði bifreiðina vegna gruns um fíkniefnamisferli. Bifreiðin var færð á lögreglustöðina þar sem lögregluhundurinn Luna þefaði efnin uppi. Þrír aðilar voru í bílnum og voru allir […]
Eyjamönnum hrósað fyrir mótahald
Um síðustu helgi fór fram fundur á vegum HSÍ vegna yngri flokka. Þar var okkur Eyjamönnum hrósað mikið fyrir frábæra skipulagningu á þeim mótum sem haldin hafa verið hér í Eyjum. Skiptir þetta okkur miklu máli varðandi úthlutun móta á vegum HSÍ. Menn viðruðu þá hugmynd að festa mót í ákveðnum aldursflokkum hér á hverju […]
Skalf ekki eftir volkið og stálsleginn eftir heita sturtu

Guðfinnur Þorgeirsson, skipstjóri, vill ekki gera mikið úr óhappi sem hann varð fyrir þegar hann hrasaði á leið um borð í bát sinn Ingu VE og féll í sjóinn þar sem hún lá við Bæjarbryggjuna. Ótrúleg tilviljun réði því að Bjarki Ómarsson, starfsmaður í Miðstöðinni, var þar nærri og heyrði í Guðfinni og sótti þrjá […]
Varanlegt svið reist fyrir stóra pallinn

Skipulags- og byggingarfulltrúi lagði fram breytingu á deiliskipulagi í Herjólfsdal á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs. Breytingin er að stóra sviðið verði stækkað og þar verði salernisaðstaða. Samþykkt var að auglýsa tillöguna. Gunnlaugur Grettisson, formaður ráðsins, sagði hugmynd þjóðhátíðarnefndar vera að koma upp vísi að varanlegu sviði. (meira…)
Aflinn í Eyjum 35 þúsund tonn

Loðnuvertíðinni er að ljúka og eru um 35 þúsund tonn komin á land í Eyjum sem var hlutur Eyjamanna í kvótanum sem var í heild 150 þúsund tonn. Áhersla var lögð á hrognavinnslu og náðust rúm 3200 tonn af hrognum. Megináhersla var lögð á að ná sem mestum verðmætum úr takmörkuðum heimildum og áhersla lögð […]
Láta sér vaxa mottu

Huginsdrengirnir ákváðu strax, að taka þátt í leiknum hjá Krabbameinsfélaginu, að láta sér vaxa yfirvaraskegg, – mottu. En það er svo að sumum vex ekki skegg og aðrir mega ekki safna. Þeir eru því að breyta til hjá sér, lesa sér til á netinu um hvaða mataræði skerpir vöxtinn. Þeir vita sem er að kynlíf […]
Stuð á Volcano Café á laugardag

Á laugardaginn verður mikið stuð á veitinga- og skemmtistaðnum Volcano Café en þá munu þeir Jógvan, Vignir Snær og Sjonni Brink mæta til Eyja og sjá um að skemmta Eyjamönnum. Í fréttatilkynningu frá eigendum Volcano Café kemur fram að þarna sé um að ræða snilldar tónlistarmenn og að viðburðurinn sé eitthvað sem enginn ætti að […]
Margrét sjaldan betri

„Margrét Lára er kominn í sitt besta form á ný og ég hef satt að segja sjaldan séð hana betri en hún er einmitt um þessar mundir,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari sænska knattspyrnuliðsins Kristianstad, í samtali við Morgunblaðið. (meira…)
Loðnuslútt um helgina á Lundanum
Um helgina mun hljómsveitin Ímynd spila á skemmtistaðnum Lundanum, bæði föstudag og laugardag. Hér er á ferðinni hreint frábær fimm manna sveit með söngvarann Alexander Aron í broddi fylkingar. Frítt er inn fram að miðnætti báða dagana og eru Eyjamenn hvattir að hafa það í huga. Svo skemmtilega vill til að Pétur Jensen, bassaleikari sveitarinnar […]
Vilja svipuð afsláttarkjör og eru í Hvalfjarðargöng
Bæjarráð hefur lagt það til við Vegagerðina að fallið verði frá núverandi fyrirkomulagi afsláttarkjara fargjalda í Herjólf og tekið upp svipað kerfi og notað er í Hvalfjarðargöngin. Þannig myndu stórnotendur eiga kost á því að kaupa 10-, 40- og 100-ferða kort með stigauknum afslætti. 10-ferða afsláttakort myndi þannig kosta 5800 kr. og hver ferð því […]
Loðna komin í búrin á Fiskasafninu

Skipverjar á Sighvati Bjarnasyni VE komu færandi hendi á Fiskasafnið á dögunum en gjöfin voru mörg kíló af lifandi loðnu. Loðnan virðist braggast ágætlega í tveimur búrum í safninu. Svo vel líkar henni lífið í Fiskasafninu að hún er farin að sinna kalli náttúrunnar, þ.e.a.s. loðnan er farin að fjölga sér í búrunum. Þetta er […]