Vorið er skammt undan og einn af vorboðunum ljúfu, fermingarnar standa fyrir dyrum. Fermingin er stór viðburður í lífi ungs fólks og í minningum hvers og eins fermingarbarns, er dagurinn að sjálfsögðu afar eftirminnilegur. Að gefa gjöf í tilefni fermingardagsins er gamall og gróinn íslenskur siður. Fólk
klæðir sig upp og býður til veislu. Fréttir hafa um árabil gefið út sérblað um fermingar, þar sem fermingabörnunum, aðstandendum þeirra og öllu því, sem að fermingunni lýtur, er gerð skil í máli og myndum.