Hið árlega Guðlaugssund stendur nú yfir í sundlaug Vestmannaeyja en alls taka 69 manns þátt í sundinu í ár. Sundið er þreytt til að minnast ótrúlegs þrekvirkis Guðlaugs Friðþórssonar, sem synti um sex kílómetra leið í ísköldum sjónum til Eyja eftir að Hellisey VE 503 sökk austan við Heimaey 11. mars 1984. Strax árið eftir syntu nemendur í Stýrimannaskóla Vestmannaeyja Guðlaugssund til að minnast afreksins og hefur sundið verið þreytt árlega síðan.