Eyjamenn unnu afar mikilvægan sigur á útivelli í gær þegar liðið sótti ÍR heim. ÍR-ingar, sem Viggó Sigurðsson, þjálfari tók við á dögunum, hafa verið að sækja í sig veðrið og með sigri hefðu þeir getað ógnað Eyjamönnum í þriðja sæti. En leikmenn ÍBV voru mjög ákveðnir og innbyrtu átta marka sigur, 27:35.