Margir velta fyrir sér rútuferðum í Landeyjahöfn. Ekki liggja fyrir hugmyndir um fjölda ferða og hvað þær koma til með að kosta. Elliði Vignisson, bæjarstjóri, vísar þar á Vegagerðina. „Ráðamenn hafa þó rætt að ekki verði um kostnaðarauka að ræða, miðað við það sem er nú í tengslum við siglingar í Þorlákshöfn. Það kostar í dag 4160 kr. fyrir fullborgandi farþega í skip og rútu, 1500 í rútuna og 2660 í skipið og 3117 ef ferðast er með afslætti í skipinu, 1500 í rútuna og 1617 í skipið.“