Talsverður munur á hugmyndum um gjaldskrá og ferðatíðni
Bæjarráð og bæjarstjóri Vestmannaeyja funduðu á föstudag með starfsmönnum Vegagerðarinnar þar sem hugmyndir stofnunarinnar um gjaldskrá og ferðaáætlun Herjólfs í Landeyjahöfn voru kynntar. Málið er enn á vinnslustigi og því ekki hægt að greina nánar frá efni fundarins. Að honum loknum hélt bæjarráð og bæjarstjóri inn í Samgönguráðuneytið til funda við Kristján L. Möller, ráðherra […]
Nýtt eldfjall í Eyjum?

Þar sem mannanna verk og náttúran mætast geta stundum orðið árekstrar. Það á þó ekki alltaf við og stundum er hægt að sjá skemmtilegar hliðar á því sem fer í taugarnar á öðrum. Sorpbrennslustöðin í Vestmannaeyjum verður seint talin bæjarprýði en Halldór B. Halldórsson, húsvörður á sjúkrahúsinu sá þó nýjan flöt á málinu um helgina. […]
Markaregn gegn ÍBV

Dagurinn í gær var ekki góður fyrir knattspyrnulið ÍBV. Kvennalið ÍBV lék gegn stórliðið Breiðabliks í Faxaflóamótinu og tapaði 8:1. Kristín Erna Sigurlásdóttir kom ÍBV yfir en Blikar svöruðu með átta mörkum áður en yfir lauk. Þá tapaði karlaliðið í æfingaleik gegn Grindavík 6:2 en leikurinn fór fram á gervigrasi Víkinga í Reykjavík. (meira…)
Ísfélagið með 20% af kvótanum í norsk í íslensku síldinni
Kvótar norsk íslenskrar síldar og kolmunna hafa verið gefnir út og skiptast þeir á skip í eigu 9 útgerðaraðila. Ísfélag Vestmannaeyja ræður yfir mestum kvóta í norsk íslensku síldinni, 43,364 tonn eða 20%. Vinnslustöðin að meðtaldri útgerð Hugins VE er með 24.670 tonn eða 12%. (meira…)
Addi Johnsen velti bíl sínum í hálku við Litlu kaffistofuna
Árni Johnsen, alþingismaður, varð fyrir því óhappi í gærkvöldi, að velta bíl sínum í mikilli hálku við Litlu kaffistofuna. Mun bíllinn hafa farið nokkrar veltur og er talsvert skemmdur. Árni var lagður inn á sjúkrahús eftir velturnar og dvaldi þar s.l. nótt. Hann mun vera óbrotinn, en allur lurkum laminn og marinn. (meira…)
Hækkar fjárhagsaðstoð til einstaklinga, hjóna og sambýlisfólks

Á fundi fjölskyldu – og tómstundaráðs s.l. miðvikudag, lagði framkvæmdastjóri og yfirfélagsráðgjafi fram tillögu um hækkun grunnupphæðar fjárhagsaðstoðar Vestmannaeyjabæjar. Samþykkt var að hækka þá upphæð úr kr. 113.455 á mánuði í kr. 125.540 á mánuði fyrir einstaklinga. (meira…)
37 ár liðin frá upphafi eldsumbrota á Heimaey
Í dag, laugardaginn 23. janúar eru liðin 37 ár frá því að eldgos hófst á Heimey. Nær allir íbúar Vestmannaeyja voru fluttir upp á land um nóttina og eldgosið hafði afdrifarík áhrif á líf og starf allra Eyjaskeggja. Mikil varnarbarátta var háð allan gostímann og mikið uppbyggingar- og endurreisnarstarf beið þeirra sem fluttu aftur til […]
Aumt hjá Jóni Bjarnasyni, sjávarúvegsráðherra að mæta ekki til Eyja
Skelfing er það nú aumt hjá Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra, að afþakka að mæta á baráttufund Eyjamanna gegn áformum Vinstri stjórnarinnar í sjávarútvegsmálum. Þessi fundur hefði nú átt að vera kjörið tækifæri fyrir sjávarútvegsráðherra að sannfæra Vestmannaeyinga að honum gengi aðeins gott eitt til með aðgerðunum og þær myndu engin áhrif hafa. Nei, hann lét sig […]
ÍBV lá fyrir Selfyssingum

Karlalið ÍBV tapaði með fjórum mörkum gegn Selfyssingum í 2. deildinni í kvöld en leikið var á Selfossi. Leiknar eru þrjár umferðir í 2. deild var þessi leikur nr. 2, fyrri leikurinn var í Eyjum og hann sigraði Selfoss. Kári Kristjánsson fylgdist með leiknum á SportTV, en þar var hann sýndur beint. Hann skrifaði leiklýsingu […]
Um 4500 fylgdust með fundinum á netinu

Mikill áhugi var á fundinum Fyrnum fyrningaleiðinni sem haldinn var í Höllinni í gær. Milli 400 og 500 manns sátu fundinn sem var sýndur í beinni útsendingu á Eyjafréttum. Útsendingin var ákveðin með frekar skömmum fyrirvara en engu að síður fylgdust um 4500 manns með fundinum á netinum, í skemmri eða lengri tíma. Þeir sem […]
Aðeins viðbragð í gulldeplu
Álsey VE landaði 470 tonnum af gulldeplu í Eyjum á þriðjudag. Ólafur Einarsson skipstjóri sagði að veiðar færu rólega af stað og minna að sjá en í fyrra. „Menn eru að vona að þetta sé að aukast en það vantar allan kraft í þetta. Við vorum að á þessum tíma í fyrra og eitthvað fram […]
Bæjarstjórn samþykkir óbreytta prósentu í fasteignaskatti og holræsagjaldi

Fasteignaskattur af húsnæði verður 0,42% af íbúðum og íbúðarhúsum, útihúsum og mannvirkjum á bújörðum, sem tengd eru landbúnaði og sumarbústöðum en 1,55% af öllum öðrum fasteignum. Þetta er samkvæmt tillögu um álagningu gjalda árið 2010 sem samþykkt var í bæjarstjórn í síðustu viku. Holræsagjald verður 0,20% af íbúðum og íbúðarhúsum, útihúsum og mannvirkjum á bújörðum, […]
Einn af fjórum úrslitaleikjum í kvöld
Í kvöld leikur ÍBV afar mikilvægan leik í 1. deild karla í handbolta þegar liðið sækir Selfyssinga heim. Leikurinn hefst klukkan 19.30 en leikurinn verður í beinni útsendingu á vefnum SportTV.is og hefst útsending tíu mínútum fyrir leik. Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV segir að Eyjamenn ætli að gefa allt í leikinn enda er möguleiki að […]
Bein útsending á eyjafrettir.is
Vegna mikils áhuga, ekki síst á fastalandinu, hefur verið ákveðið að hafa beina útsendingu frá baráttufundinum sem haldinn verður í kvöld í Vestmannaeyjum hér á www.eyjafrettir.is. Fundurinn verður haldinn í samkomuhúsinu Höllinni og hefst klukkan 20:00, en húsið verður opnað kl. 19:30. (meira…)
Skemmdir á þremur stöðum

Mikið óveður gengur nú yfir Vestmannaeyjar og hefur lögreglan varað fólk við og hjálparsveit Björgunarfélagsins er í viðbragðsstöðu. Vitað er um skemmdir á húsi við Brimhólabraut sem skemmdist í óveðri í haust. Stífa varð grindverk við Hólagötu og járn er að losna af húsi við Goðahraun. (meira…)
Biður fólk að líta í kringum sig eftir lausum munum og sýna aðgát vegna óveðursins

Lögreglan varar við miklu óveðri sem er skollið á. Samkvæmt síðustu athugun á Stórhöfða var 10 mínútna meðalvindhraði 33 m á sekúndu og mesta hviðan 42 m. Gert er ráð fyrir að verst verði veðrið milli klukkan 15.00 og 21.00 en hámarki nær það klukkan 18.00. (meira…)
Eyjapeyjar fylgdust með landsliðinu á Volcano

Í dag leikur íslenska karlalandsliðið gegn heimamönnum í Austurríki á EM í handbolta. Leikurinn er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á RÚV en útsendingin hefst klukkan 17.00. Hægt er að fylgjast með EM í handbolta á stórum skjá á Volcano Café og þetta nýttu leikmenn ÍBV sér á þriðjudaginn þegar Ísland lék gegn Serbíu. (meira…)
Seinni ferð Herjólfs sleginn af
Seinni ferð Herjólfs, sem fara átti kl. 16.00 í dag frá Eyjum hefur verið slegin af vegna veðurs. 27 metra meðalvindur var á Stórhöfða kl. 12 í dag og í mestu hviðum sló í 42 metra. Samkvæmt veðurspá á versta veðrið að koma síðdegis. Öldudufl við Surtsey sýnir 7.1 metra ölduhæð þar en Bakkafjöruduflið (meira…)
Dýpkun á að hefjast í apríl

Enn er ekki ljóst hver smíðar farþegaaðstöðu Landeyjahafnar þegar aðeins rúmir fimm mánuðir eru þangað til höfnin á að vera tilbúin. Auglýst var eftir tilboðum í lok nóvember og voru tilboðin, sem alls voru 27 talsins, opnuð 17. desember síðastliðinn. Lægsta tilboðið átti SÁ verklausnir ehf, 96,8 milljónir tæpar en kostnaðaráætlun hönnuða var upp á […]
Norðanmenn hugsa sér gott til glóðarinnar

Helgina 12. til 14. febrúar nk. verður boðið upp á beint flug fram og til baka milli Vestmannaeyja og Akureyrar. Á fréttavef Akureyrar segir að þetta sé góður kostur fyrir Norðlendinga og kannski sérstaklega norðlenska kylfinga þegar í fyrsta sinn verði farið í beint áætlunarflug á milli Vestmannaeyja og Akureyrar, tvisvar sinnum fram og til […]