Leggja til 130 þúsund tonna loðnukvóta

Hafrannsóknastofnunin leggur til við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að heimilaðar verði veiðar á 130 þúsund tonnum af loðnu í vetur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stofnuninni í dag sem lesa má hér að neðan. Þar kemur m.a. fram að áætlað er að hrygningarstofn loðnunnar sé 530 þúsund tonn en samkvæmt gildandi reglum er gert ráð […]

Binni á fundi hjá Sjálfstæðismönnum

Á morgun, laugardaginn 30. janúar verður Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, gestur á morgunfundi Sjálfstæðismanna í Ásgarði. Fundurinn er öllum opinn en hann hefst klukkan 11.00. Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja hefur haldið vikulega fundi í vetur sem hafa mælst vel fyrir. (meira…)

�?llum tilboðum í húsnæði ÁTVR hafnað

Áfengis og tóbaksverslun ríkisins í Vestmannaeyjum verður að öllum líkindum áfram í húsnæði við Strandveg. Ríkisskaup aug­lýstu um miðjan október eftir húsnæði undir verslunina. Fimm tilboð bárust en þeim hefur öllum verið hafnað. (meira…)

Leik ÍBV frestað á morgun

Karlalið ÍBV átti að leika á morgun, laugardag mikilvægan leik í 1. deild handboltans þegar Víkingar koma í heimsókn. Leikurinn átti að hefjast klukkan 13.30 en hálftímaáður, eða klukkan 13.00 leikur íslenska karlalandsliðið í handbolta í undanúrslitum EM gegn Frökkum. Af þessum sökum hefur leik ÍBV verið frestað til klukkan 15:15 sama dag. (meira…)

Hver gaf hverjum hvað?

Ólína Þorvaðardóttir skrifar grein í Morgunblaðið 25. janúar síðastliðinn, þar sem hún segir að útgerðarmenn þurfi að skila þjóðinni til baka þeim aflaheimildum sem þeim hafi verið úthlutað að gjöf árlega. Ólína virðist ekki vera vel að sér um sjávarútveg en mig langar að upplýsa hana aðeins. (meira…)

ið vitum nánar hvaða tegundir þetta eru þegar þeir koma í land

sem er með Sæheima og Fiska- og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja á sinni könnu. „Við keyptum tvo sérhannaða tanka frá Sæplasti á Dalvík til að flytja lifandi fiska í land og annar þeirra er nú um borð í Brynjólfi en við eigum eftir að finna pláss fyrir hinn tankinn. Við vonumst til þess að fá fleiri spennandi […]

Jói Listó hannar frímerki fyrir Íslandspóst

Íslandspóstur gefur í dag út tvö ný frímerki en það er Eyjamaðurinn Jóhann Jónsson, betur þekktur sem Jói Listó sem hannar frímerkin. Frímerkin eru tvö af sex merkjum sem Jói mun hanna fyrir Íslandspóst en næstu tvö koma út í janúar 2011 og síðustu tvö árið 2012. Á frímerkjunum tveimur sem komu út í dag […]

Risa vöru- og þjónustusýning í Höllinni í maí

Helgina 21. til 24. maí verður haldin risa vöru- og þjónustusýning í Vestmannaeyjum í Höllinni. Í fréttatilkynningu frá framkvæmdaraðila sýningarinnar, Björgvini Þór Rúnarssyni segir að á sýningunni gefist fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum tækifæri á að koma á framfæri vöru sinni og þjónustu. Rúsínan í pylsuendanum sé svo stórdansleikur með Sálinni hans Jóns míns þann 23. […]

�?tlit fyrir fjóra framboðslista í kosningunum í vor

Nú eru fjórir mánuðir til bæjar­stjórnar­kosninga sem fara fram 29. maí í vor. Í dag eru Sjálfstæðismenn og Vestmannaeyja­listinn í bæjar­stjórn en allt bendir til þess að allt að fjórir listar verði í boði í vor. Hörður Óskarsson, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Vest­mannaeyjum, sagði að ráðið kæmi fljótlega saman og tæki ákvörðun um hvaða aðferð […]

�?að þarf nú meira til að raska taktinum í mér

Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, dvelur enn á sjúkrahúsi eftir að hafa velt bíl sínum við Litlu kaffistofuna síðastliðið föstudagskvöld. Árni hefur nýtt dvölina á sjúkrahúsinu vel, því hann skellti sér einnig í reglulega skoðun á hjartadeild á dögunum. (meira…)

Hafa hækkað um 50% á þremur árum

Afsláttarkort í Herjólf hefur hækkað um tæp 50% á aðeins þrem­ur árum. Þann 23. janúar 2007 keypti Óskar Elías Óskarsson, íbúi í Vestmannaeyjum, af­sláttarkort á 14.400 krónur. Þremur árum síðar og þremur dögum betur, keypti Óskar aftur afsláttarkort en nú á 21.560 krónur og nemur hækkunin 49,7%. Á sama tímabili, frá jan­úar 2007 til janúar […]

Tapið 600 milljónir

Á fjölmennum fundi í Höllinni í síðustu viku, þar sem blásið var til sóknar gegn fyrningarleið í sjáv­arútvegi, útflutningsálagi á ísfisk, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni, komu fram at­hyglisverðar tölulegar upplýsingar um hversu miklir hagmunir eru í húfi fyrir Vestmannaeyjar þegar breytingar eru gerðar á fiskveiði­stjórn­unarkerfinu. Getur það skipt hundruðum milljóna þó aðgerðirnar láti […]

Enn hægt að nálgast sæti í beint flug til Akureyrar

Enn er hægt að nálgast laus sæti í beint flug milli Vestmannaeyja og Akureyrar en boðið verður upp á flugið helgina 12. til 14. febrúar næstkomandi. Farið kostar 18.130 krónur fram og til baka með sköttum. Akureyri hefur margt upp á að bjóða, skíði, leikhús þar sem Leikfélag Akureyrar sýnir 39 þrep og á Akureyri […]

Eyjakona opnar vefsíðu um heilsu barna

Eyjakonan Hrund Scheving opnaði á dögunum nýja vefsíðu, www.léttariæska.is en vefurinn hefur að geyma upplýsingar, ráð og fróðleik fyrir foreldra sem vilja huga vel að heilsu barna sinna og koma í veg fyrir ofþyngd þeirra. Ofþyngd barna hefur aukist í hinum vestræna heimi og er Ísland ekki undanskilið því en síðunni er ætlað að aðstoða […]

Nokkuð harður árekstur í morgun

Nokkuð harður árekstur varð í morgun á gatnamótum Illugagötu og Kirkjuvegar. Áreksturinn varð með þeim hætti að fólksbíll, sem var að beygja yfir gatnamótin til austurs, var ekið í veg fyrir jeppa sem var að fara yfir gatnamótin, niður Illugagötuna. Fólksbíllinn skemmdist nokkuð og var óökufær á eftir en engin slys urðu á fólki. (meira…)

ÍBV semur ekki við lettneska framherjann

ÍBV ætlar ekki að semja við lettneska framherjann Aleksandrs Cekulajevs sem hefur verið til reynslu hjá liðinu að undanförnu. Aleksandrs lék nokkra æfingaleiki með ÍBV og skoraði gegn Víði Garði en Eyjamenn hafa ákveðið að semja ekki við hann. „Hann var ekki nógu öflugur,“ sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV við Fótbolta.net í gær. (meira…)

Fundu fíkniefni á unglingi

Síðasta vika var á rólegri nótunum hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Eitt fíkniefnamál kom upp en að kvöldi sunnudags fundust fíkniefni á dreng sem er á sautjánda ári en drengurinn hafði komið með Herjólfi sama kvöld. Um var að ræða smáræði af kannabisefnum og telst málið vera upplýst. Þá voru nokkur útköll vegna veðurofsans sem gekk […]

Bergur-Huginn gaf Slysavarnaskólanum flotvinnubúninga

Útgerðarfyrirtækið Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum gaf í dag Slysavarnaskóla sjómanna þrjá flotvinnubúninga til að nota við æfingar á námskeiðum skólans. Andvirði gjafarinnar er um 500.000 kr. Bergur-Huginn hefur lagt mikla áherslu á öryggismál skipa sinna, sem eru Vestmannaey, Bergey og Smáey, og sóttu áhafnir þeirra endurmenntunarnámskeið í öryggismálum við Slysavarnaskóla sjómanna í desember og janúar. (meira…)

Töpuðu fyrir Menntaskólanum við Hamrahlíð

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur lokið keppni í Gettu betur þetta árið en lið FÍV komst í aðra umferð keppninnar með því að leggja Framhaldsskólann í Mosfellsbæ að velli í fyrstu umferð 9:6. En í annarri umferð, síðasta föstudag, mætti FÍV liði Menntaskólans við Hamrahlíð. Eyjaliðið sá varla til sólar í viðureigninni og tapaði 27:7. Öll […]

Ráðherra og bæjarstjóri skyldu sáttir

Eins og greint var frá hér á Eyjafréttum fyrr í morgun, fundaði bæjarráð og bæjarstjóri, Elliði Vignisson með samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller og embættismönnum ráðuneytisins. Þeir Elliði og Kristján hafa skipst á föstum skotun undanfarna daga en Elliði segir að þeir hafi m.a. rætt þessa árekstra á fundinum. „Já við ráðherra ræddum þau mál vel […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.