Bærinn skýrir ástandið í Búastaðagryfju
Búastaðagryfja í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Undanfarnar vikur hefur ástandið í Búastaðagryfju verið til umræðu meðal íbúa Vestmannaeyja vegna mikillar uppsöfnunar timburs og annars efnis á svæðinu. Í tilkynningu sem birt hefur verið á vef Vestmannaeyjabæjar kemur fram að orsök vandans sé bilun í búnaði hjá Terra og að unnið sé að því að koma svæðinu aftur í viðunandi horf. Þá hefur Umhverfis- og orkustofnun nýlega framkvæmt formlegt eftirlit á svæðinu og er beðið eftir niðurstöðum þess. Hér að neðan má lesa tilkynningu bæjaryfirvalda um málið.

Undanfarið hefur skapast umræða í sveitarfélaginu um slæmt ástand í Búastaðagryfju. Svæðið er fyrst og fremst ætlað fyrir efni til landmótunar svo sem hreinan jarðveg. Vestmannaeyjabær vill af þessu tilefni upplýsa íbúa um ástæður ástandsins og þau skref sem nú eru tekin til úrbóta.

Ástæður fyrir uppsöfnun timburs 

Sú staða sem nú er uppi má rekja til bilunar sem varð á færibandi við kvörn í móttökustöð Terra. Því miður tók langan tíma hjá Terra að útvega nýtt færiband. Til að bregðast við fór Terra í þá bráðabirgðalausn að koma öllu timbri fyrir í Búastaðagryfju á meðan. Vegna mikillar losunar á þessum úrgangsflokki frá bæði einstaklingum og fyrirtækjum safnaðist mikið magn upp á skömmum tíma.

Eftirlit Umhverfis- og orkustofnunar 

Þann 3. júní síðastliðinn kom fulltrúi frá Umhverfis- og orkustofnun í formlegt eftirlit í Búastaðagryfju. Í kjölfar þeirrar heimsóknar er beðið eftir skýrslu frá stofnuninni. Vestmannaeyjabær og Terra munu yfirfara þá skýrslu ítarlega og bregðast við þeim ábendingum sem þar koma fram og leggja til úrbótaáætlun.

Næstu skref 

Megináhersla er lögð á að koma svæðinu aftur í viðunandi horf hið fyrsta. Á næstu vikum mun Terra fjarlægja allt timbur sem safnast hefur upp í gryfjunni og koma því í viðeigandi farveg.

Bærinn þakkar íbúum fyrir ábendingar sínar og þolinmæði á meðan unnið er að lausn málsins, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.