Í síðustu viku funduðu fulltrúar bæjarins með hagsmunaaðilum vegna endurbyggingar upptökumannvirkja við Skipalyftuna. Seinni fundurinn var með þjónustuaðilum en þrjár hugmyndir eru uppi um stærð lyftunnar og er áætlaður kostnaður við þær frá 250 milljónum upp í 600 milljónir. Dýrari kostirnir þýða stærri lyftu sem gæti tekið upp stærri skip.