Benedikt sigraði í bráðabana
DSC_4197
Benedikt Baldursson (t.v.) og Hallgrímur Steinsson við upphaf einvígisins í gær. Eyjar.net/Óskar P. Friðriksson

Í gærkvöldi fór fram úrslitaeinvígi milli tveggja efstu keppanda á Skákþingi Vestmannaeyja.

Hallgrímur Steinsson og Benedikt Baldursson urðu efstir og jafnir eftir að Skákþinginu lauk, báðir með 9 vinninga af 11 mögulegum.

Því var háð úrslitaeinvígi þeirra á milli. Einvígið var jafnt og hörkupennandi. Þriggja skáka einvíginu lauk með jafntefli 1,5 – 1,5.

Þá fór fram bráðabani með 3ja mínútna skák og sigraði Benedikt og er því nýr Skákmeistari Vestmannaeyja 2024. Þrír urðu jafnir í þriðja sæti með 8 vinninga.

Hér má sjá mótið í heild.

DSC_4189

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.