Bergur heldur til veiða í dag
Bergur VE á leið í flotkví í Hafnarfirði. Ljósm. Arnar Richardsson

Ísfisktogarinn Bergur VE hefur í um mánaðartíma verið í Hafnarfirði þar sem ýmsu viðhaldi hefur verið sinnt. Framkvæmdur var öxuldráttur, báðar aðalvélar teknar upp og fleiri smærri verkefni voru á dagskrá. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Skipið var um tveggja vikna skeið í flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar á meðan viðhaldvinnan fór fram. Nú er viðhaldsverkefnunum lokið og voru vélar prufukeyrðar í gær. Síðan er gert ráð fyrir að Bergur haldi til veiða í dag.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.