Bjartey Ósk sigurverari í friðarveggspjaldakeppni Lions
Bjartey Ósk ásamt nöfnu sinni og móður. Arnar Andersen formaður Lions í Vestmannaeyjum afhenti henni viðurkenningu fyrir hönd Lions.

Í haust bauðst nemendum í 6.-8. bekk að taka þátt í friðarveggspjaldakeppni Lions, 34 nemendur úr GRV sendu inn mynd í keppnina. Þema fyrir árið 2021-2022 er We Are All Connected eða Við erum öll tengd.

Dómnefnd á vegum Lionsklúbbsins í Vestmannaeyjum valdi mynd Bjarteyjar Óskar Sæþórsdóttur úr 7. bekk sem framlag skólans. Sú mynd var send áfram í næstu umferð þar sem 16 skólar kepptust um að fá að senda framlag Íslands í alþjóðakeppnina. Skemmst er frá því að segja að myndin hennar Bjarteyjar Óskar var valin sem framlag Íslands.

Bjartey Ósk sigurverari í friðarveggspjaldakeppni Lions.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.