Kvennalið ÍBV í handknattleik tekur á móti Fram í Olísdeildinni í dag klukkan 14:00. Leikurinn verður svokallaður bleikur leikur í tilefni bleiks október og rennur allur aðgangseyrir til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum.
Eyjakonur munu leika í glænýjum bleikum treyjum frá Macron í tilefni dagsins. Með framtakinu vill ÍBV vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini og um leið styðja við mikilvægt starf Krabbavarnar í Vestmannaeyjum.
Aðgangseyrir á leikinn er 2.500 krónur og er miðasala hafin í Stubb-appinu. Athygli er vakin á því að Krókódílakortin gilda ekki á þennan leik.
Fulltrúar Krabbavarnar í Vestmannaeyjum verða jafnframt með varning til sölu í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar og eru gestir hvattir til að styðja við starf félagsins með kaupum á varningnum.
Það er ekki aðeins gott málefni sem er í húfi því ÍBV og Fram eru jöfn með átta stig í öðru og þriðja sæti Olísdeildar kvenna eftir fimm umferðir.
Eyjakonur koma til leiks eftir góðan 30–26 útisigur á ÍR í síðustu umferð og freista þess nú að fylgja þeim árangri eftir á heimavelli.
ÍBV – Fram hefst klukkan 14:00 í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.

