Breytingar á sorpmálum
sorp
Þriggja flokka kerfi hefur verið við heimili í Vestmannaeyjum síðan 2011. Í ár verður innleitt fjögra flokka kerfi. Eyjar.net/TMS

Vestmannaeyjabær boðar nú breytingar á sorphirðu og sorpförgun frá heimilum. Í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum er farið yfir breytingarnar. Tilkynninguna má lesa hér að neðan.

– Þriggja flokka kerfi hefur verið við heimili í Vestmannaeyjum síðan 2011. Í ár munu við innleiða fjögra flokka kerfi þar sem eina breytingin við heimilin er að aðskilja þarf pappa og plast í sér tunnur. Skylda er að vera með ílát fyrir fjóra flokka við öll heimili. Íbúar hafa möguleika á að hafa áhrif á fjölda og stærð íláta miðað við þjónustustig sem hentar fyrir heimilið.

– Málm og gler þarf að losa á grenndarstöðvar eða á móttökustöð upp á hrauni. Tvær nýjar grenndarstöðvar verða settar upp. Ein á Tangagötu vestan við Krónuna og önnur í botnlanga milli Eyjahrauns 1 og Eyjahrauns 3. Þetta verður auglýst betur síðar.

– Leita á til Vestmannaeyjabæjar þegar endurnýja og viðhalda þarf sorpílátin. Íbúar bera ábyrgð á að hreinsa ílátin.

– Nýjum tvískiptum tunnum verður keyrt út þegar viðeigandi sorpbíll kemur til Eyja.

– Þessi þáttur í sorpmálum er inn í fasteignagjöldunum.

Móttökustöð – Sorpusvæði

– Vestmannaeyjabær hefur borgað með móttöku á gjaldskyldum úrgangi skv. gjaldskrá. Þessi kostnaður hefur hlaupið á tugum milljóna ár hvert. Þetta er greitt með útsvari íbúa í Vestmannaeyjum í stað þess að sá sem hendir þurfi að borga fyrir það. Skv. lögum hefur Vestmannaeyjabær ekki heimild til að greiða með þessu lengur og því þarf að rukka alla sem koma á flokkunarsvæðið á móttökustöðinni og henda sorpi skv. gjaldskrá.

– Ekki er rukkað fyrir losun á endurvinnanlegum efnum eins og t.d. pappa, plasti, raftækjum, hjólbörðum og málmi.

– Kostnaður vegna móttökusvæðis er ekki inn í þeim gjöldum sem innheimt eru með fasteignagjöldum heldur hafa verið greidd sérstaklega af útsvarstekjum.

Gjöld – kostnaður

– Sorphirða og sorpförgun frá heimilum verður rukkað eins og áður með fasteignagjöldum. Fyrir árið 2023 var það samanlagt rúmar 69 þús. kr. og fyrir árið 2024 verður það 71. þús. kr.

– Vestmannaeyjabær hefur ekki verið að rukka íbúa þegar þeir fara á móttökustöð við Eldfellsveg heldur hefur verið að greiða með móttökustöðinni og nam kostnaðurinn við það fyrir árið 2023 um 93 milljónir króna. Skv. lögum er það ekki lengur heimilt og er það þannig að þeir borga sem henda sem tekur það gildi frá og með 1. febrúar.

Sorpútboð er áætlað í lok janúar. Endurskoða þarf gjaldskrá móttökustöðvar í kjölfar útboðs enda endurspeglar gjaldskrá raunkostnað við móttöku, förgun og flutning sorps.

Nýjustu fréttir

ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra
Gamla myndin
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn
Þakklát fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt
Samþykktu rekstrarviðauka fyrir Náttúrustofu Suðurlands
Skoða byggingu sjúkrasundlaugar
Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.