Breytt deiliskipulag – Miðbæjarskipulag, 2 áfangi, Standvegur 51 (Tölvun)

Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar samþykkti þann 7. apríl 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á Deiliskipulagi Miðbæjar, 2 áfangi, auglýst skv. 1 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst í meginatriðum í stækkun byggingarreits, auknu byggingarmagni og viðbættri 4. hæð á Strandvegi 51. Heildar byggingarmagn var 514,6 m2 og verður 1490,0 m2. Grunnflötur byggingarinnar er einnig stækkaður er nú 334,6 m2 og í 467,0 m2.

Þakform er með breyttum hætti, var mænisþak en verður nú einhalla þak. Hámarkshæð hússins helst óbreytt 14,5 m en hámarks vegghæð hækkar frá 9 m í 14,5 m.

Krafa um atvinnustarfsemi á jarðhæð helst óbreytt en á hluta hæðarinnar er gert ráð fyrir bílastæðahúsi fyrir 4 bíla. Lóðamörkum milli Strandveg 51 og Standaveg 55 er breytt og gert er ráð fyrir 2 bílastæðum fyrir Standveg 51 með innkeyrslu frá Miðstræti. Hámarksfjöldi íbúða verður 8 íbúðir.

Samkvæmt deiliskipulagi skal ytra byrði hönnunar hússins skal vera samkvæmt innsendum teikningum. Tillögu teikningar má sjá á vefmyndbandi

https://youtu.be/imXIJAGfb6g

Skipulagsgögn liggja frammi hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði að Skildingavegi 5 á tímabilinu 28. apríl til 9. júní 2022 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér gögnin. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 9. júní 2022 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.