„Bullandi keyrsla”
20220816_bergur_tm_min
Bergur VE í Vestmannaeyjahöfn. Eyjar.net/TMS

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE hafa fiskað vel að undanförnu. Vestmannaey landaði fullfermi í Eyjum í fyrradag og Bergur í gær.

Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergi er spurður út í gang veiðanna á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag.

„Það er búið að vera fínt fiskirí. Túrarnir eru stuttir, gjarnan einn og hálfur til tveir dagar og síðan er fullfermi landað. Við erum búnir að taka þrjá túra tvær vikur í röð. Þetta er bullandi keyrsla. Upp á síðkastið höfum við verið að veiða vestan við Eyjar og einnig austur á Ingólfshöfða. Í síðasta túr vorum við á Höfðanum. Aflinn er þorskur, ufsi og ýsa. Það var mest af ýsu í þessum túr en það var mest af þorski og ufsa í túrnum á undan. Við erum í reynd að sækja fisk fyrir vinnsluna. Það er búið að vera þokkalegasta veður að undanförnu, þó ávallt komi brælur af og til. Brælurnar hafa ekki staðið lengi og tafið okkur lítið. Í sannleika sagt hefur veður verið með skárra móti,” segir Jón.

Nýjustu fréttir

Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.