Deiliskipulag við Græðisbraut samþykkt
Skjáskot af Já.is

Umdeilt deiliskipulag á athafnasvæði AT-1 við Græðisbraut var tekið fyrir á fundi Umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja í vikunni en um er að ræða frestað mál frá fundi nr. 328.
Tillaga deiliskipulags á athafnasvæði AT-1 var lögð fram að lokinni auglýsingu. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Heiðarvegi til austurs, Norðursundi og aðliggjandi deiliskipulagsmörkum til norðurs, Flötum og lóðamörkum Heiðarvegar 14 og Faxastígs 36 til vesturs og Faxastíg til suðurs. Tillagna er unnin af skipulagshönnuðum Alta ehf. fyrir Vestmannaeyjabæ. Tillaga dags. 20. apríl 2020 var auglýst frá 8. maí til 19. júní 2020.

Fjögur bréf bárust ráðinu en einnig liggja fyrir umsagnir umsagnaraðila. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnasvæði AT-1. Lagt er fyrir skipulagsfulltrúa að svara bréfriturum. Erindinu er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Hvað varðar aðgengi að sundi á milli Græðisbrautar og Heiðarvegar þá er kvöð í nýju deiliskipulagi sbr. gr. 2.1.10 um sameiginlega aðkomu allra vegfarenda. Ekki er heimilt að hamla för akandi, gangandi eða hjólandi vegfarenda um svæðið t.a.m. með farartækjum, vinnutækjum, gámum eða öðru sambærilegu. Ekki er heimilt að reisa stoðveggi, girðingar eða skilti í sundinu sem hamla för vegfarenda. Þessi kvöð á við um alla einnig lóðarhafa á þessu svæði og því ekki verið að veita neinum aukna heimild umfram aðra.
Athugasemdir bárust varðandi sólarhæð, skuggavarp og útsýni. Rétt er að minna á að um er að ræða athafnasvæði og engin leið að tryggja útsýni frá öllum fasteignum.
Hvað varðar byggðamynstur og menningarsögulegt gildi eldri bygginga á þessu svæði, sem tilheyrir nýju deiliskipulagi, þá er byggingastíll mjög mismunandi bæði í hæð og útliti. Hæð fyrirhugaðs húsnæðis mun vera í jafna línu við hús sem stendur við Vesturveg 38. Tillaga að deiliskipulagi samþykkt með þremur atkvæðum E- og H- lista gegn tveimur atkvæðum D- lista.

Þjónar ekki heildarhagsmunum
Fulltrúar D- lista bókuðu eftirfarandi. “Undirrituð ítreka fyrri bókanir í málinu og teljum sem fyrr að umrætt skipulag þjóni ekki heildarhagsmunum samfélagsins heldur séu hagsmunir ákveðinna aðila innan svæðisins vegnir þyngra en annarra. Slíkt er óásættanlegt. Þá höfum við áður bent á að það mikla byggingarmagn sem áætlað er á ákveðnu svæði innan skipulagsins sé óhóflegt og svæðinu ekki til framdráttar. Þá teljum við einnig ljóst að með skipulaginu eins og það liggur fyrir sé einungis verið að auka við þær deilur sem upp hafa risið á svæðinu en ekki stilla til friðar. Við greiðum því atkvæði gegn skipulaginu eins og það liggur fyrir.”

Hagsmunir allra bæjarbúa að leiðarljósi
Því var svarað með bókun frá fulltrúum E- og H- lista. “Meirihluti E- og H-lista hefur í sínum ákvörðunum hagsmuni allra bæjarbúa að leiðarljósi í þessu máli sem og öðrum. Mikilvægt er að öll fyrirtæki, smá sem stór, geti dafnað vel í okkar samfélagi og hafi tök á því að stækka. Mikil þörf er á því að efla uppbyggingu í atvinnulífinu.”

Önnur svæði heppilegri
Því fylgdi eftirfarandi bókun frá fulltrúm D- lista. “Það er mikill misskilningur ef fulltrúar meirihlutans séu að ýja að því að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins séu à móti atvinnuuppbyggingu í Vestmannaeyjum. Þvert à móti. Fulltrúar D-lista hafa t.d. bent à önnur svæði sem heppileg gætu orðið til að fyrirtæki à svæðinu gætu vaxið án þess að valda frekari deilum innan núverandi svæðis.”

hér að neðan má sjá uppdrátt og greinargerð deiliskipulagsins auk þeirra bréfa og umsagna sem sem bárust.

Bréf-1.pdf
Bréf-2.pdf
Bréf-3.pdf
Bréf-4.pdf
Umsagnir.pdf
A1386-020-U01 Heiðarvegur, tillaga að deiliskipulagi, uppdráttur.pdf
A1386-022-U01 Heiðarvegur, tillaga að deiliskipulagi, greinargerð.pdf

Nýjustu fréttir

Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Lífríki íslenskra hafna í hættu?
Fimleikafélagið Rán tók þátt í Vormóti Gróttu
Samningi Filip Stuperavic rift við ÍBV
Eyjamenn áhyggjufullir vegna næsta vetrar
Eyjamenn fjölmenntu á samgöngufund Vegagerðarinnar
Ný bæjarstjórn tekur til starfa í dag – fundurinn í beinni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.