Ef það er einhvern tímann ástæða til að sprengja

Flugelda sala Björgunarfélags Vestmannaeyja opnar á sínum stað við Faxastíg 38 í dag  verður opin alla daga til áramóta frá 10:00 til 21:00 og 9:00 til 16:00 á gamlársdag. Faxastígurinn verður þó ekki eini sölustaðurinn þetta árið því einnig hefur verið opnuð vefverslun með flugelda á slóðinni eyjar.flugeldar.is. Netsalan hófst sunnudaginn 20. desember en vörur verða afhentar í vikunni. Adólf Þórsson sem haft hefur veg og vanda af flugeldasölunni hjá Björgunarfélaginu undanfarin ár segir það gert til að auka þjónustu við bæjarbúa. „Við vonumst til að bæjarbúar taki þessari nýjung hjá okkur vel. Vöruúrval í vefverslun er nánast það sama og í búðunum hjá okkur, en nú verða búðir á báðum hæðum og er það gert til að bregðast við fjöldatakmörkunum vegna Covid.“ Adólf hvetur fólk til að versla tímalega til að forðast biðraðir. Hann vildi einni koma því á framfæri að vegna sóttvarna þá verður takmarkað hve margir viðskiptavinir geta verið á sölustað. Grímuskylda er á sölustað, og fólk beðið um að sinna persónulegum sóttvörnum. Aðspurður um þær nýjungar sem verði á boðstólum í verslun segir hann að nokkur aukning verði í minni tertum og búið sé að bæta enn frekar í tegundir af fjölskyldupökkum.

Tökum bjartsýn á móti 2021   

Þegar talið barst að því hvort ekki væri ærið tilefni til að sprengja þetta árið var Addi ekki lengi að svara. „Ef það er einhver ástæða til að sprengja mikið á áramótum, þá er það sannarlega eftir þetta skrýtna og furðulega ár. Tökum bjartsýn á móti 2021 og gerum okkar besta að það verði árið sem vert er að muna. Það er ekki verra að styrkja gott málefni með því að versla flugelda hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja óskar bæjarbúum og velunnurum Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökk fyrir stuðninginn á liðnum árum,“ sagði Addi hress að lokum.

Nýjustu fréttir

Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Morgan Goði – Íþróttamaður mánaðarins
Þrír ættliðir stóðu vaktina í Tvistinum
Dagskrá 17. júní
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt yfir áætlun
Binni í Vinnslustöðinni – Kynni mín af Ísleifsfólki

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.