Einn besti dagur sumarsins í Eyjum
Sól, blíða og hægur vindur – Eyjarnar skarta sínu fegursta
Golfvöllurinn, Smáeyjar, Fíllinn og Blátindur.

Vestmannaeyjar skarta sínu allra fegursta í dag, sunnudaginn 9. ágúst, og óhætt að segja að dagurinn sé einn sá besti í sumar. Sól hefur skinið, vindur hægur og hitinn notalegur. Þegar allt þetta fer saman gerast sumardagar í Eyjum vart miklu betri.

Eyjamenn kunna vel að meta daga sem þessa. Þegar vindurinn tekur sér frí, sólin fær að njóta sín og útsýnið yfir bæinn, Heimaklett og eyjarnar í kring opnast í allri sinni dýrð er fátt sem jafnast á við Vestmannaeyjar.

Eftir misjafnt sumarveður er blíðan kærkomin og margir hafa nýtt daginn til útiveru, gönguferða og þess einfaldlega að njóta veðurblíðunnar.

Hvort 9. ágúst verður skráður besti veðurdagur sumarsins skal ósagt látið. Hann á þó örugglega eftir að verða í hópi þeirra bestu.

Svona dagar minna okkur á hvers vegna við búum í Eyjum.

 

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.