Ekki siglt fyrri part föstudags
herjolfur_b-3.jpg
Herjólfur bundinn við bryggju í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Tekin hefur ákvörðun að fella niður allar ferðir Herjólfs fyrri part föstudags vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Ákvörðun sem þessi er alltaf tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga. Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína.

Hvað varðar siglingar seinni part dagsins þá stefnir Herjólfur til Þorlákshafnar samkvæmt eftirfarandi áætlun:

  • Brottför frá Vestmannaeyjum kl 16:00 (áður kl 17:00).
  • Brottför frá Þorlákshöfn kl 19:45 (áður kl 20:45).

Aðrar ferðir hafa verið felldar niður.

Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Nýjustu fréttir

Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.