Elís Þór leikur ekkert með ÍBV í vetur - Sleit krossband í leik með u-20 landsliðinu
Elís Þór Aðalsteinsson í leik með ÍBV gegn Val. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Elís Þór Aðalsteinsson, leikmaður ÍBV í handbolta, mun ekkert leika með ÍBV í Olís deild karla á komandi tímabili, þar sem hann er með slitið krossband í hné. Elís staðfesti þetta í samtali við handkastið. 

Hann varð fyrir því óláni að slíta krossband í leik íslenska u-20 ára landsliðsins gegn Danmörku, á Evrópumótinu fyrr í mánuðinum. Það er alveg ljóst að þetta er mikið áfall fyrir ÍBV enda Elís einn af lykilmönnum liðsins. 

Elís, sem leikur sem hægri skytta, var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili þar sem hann skoraði 111 mörk í 17 leikjum.

Í samtali við handkastið segir hann: ,,Tilfinningin að fá þetta staðfest var hræðileg og mikið áfall fyrir mig og fólkið í kringum mig. Næstu skref eru að hitta Örnólf og koma þessu af stað.”

Nýjustu fréttir

Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.