Guðmundur Þ. Guðmundsson tilkynnti í dag hópinn sem tekur þátt í lokaundirbúningnum fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik sem hefst í Svíþjóð og Póllandi 11. janúar. Tveir Eyjamenn eru í hópnum er þar má finna þá Elliða Snæ og Hákon Daða sem báðir leika með Gummersbach.
Guðmundur valdi 19 manna hóp sem hefur æfingar fyrir mótið miðvikudaginn 28. desember og spilar tvo vináttulandsleiki við Þjóðverja dagana 7. og 8. janúar, á leið sinni til Svíþjóðar en þar leikur Ísland fyrsta leikinn gegn Portúgal í Kristianstad 12. janúar.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Val
Viktor Gísli Hallgrímsson, Nantes
Ágúst Elí Björgvinsson, Ribe-Esbjerg
Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson, Veszprém
Hákon Daði Styrmisson, Gummersbach
Vinstri skyttur:
Aron Pálmarsson, Aalborg
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg
Ólafur Guðmundsson, Amicitia Zürich
Miðjumenn:
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg
Janus Daði Smárason, Kolstad
Elvar Örn Jónsson, Melsungen
Hægri skyttur:
Ómar Ingi Guðmundsson, Magdeburg
Viggó Kristjánsson, Leipzig
Kristján Örn Kristjánsson, Aix
Hægra horn:
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad
Óðinn Ríkharðsson, Kadetten
Línumenn/varnarmenn:
Ýmir Örn Gíslason, RN Löwen
Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst