Margir Eyjamenn hafa verið í Frakklandi síðustu daga eða huga að ferð til Frakklands núna til að sjá Íslands spila á móti Frakklandi í 8. liða úrslitunum. Miðasala á leik Íslands og Frakklands sem fram fer á sunnudaginn hefst klukkan 12 á hádegi í dag, en þar mun gilda fyrstur kemur, fyrstur fær, óháð þjóðerni. �?að má því gera ráð fyrir gríðarlegum áhuga þegar salan hefst, enda er Ísland að mæta gestgjöfunum og mjög mikill áhugi er meðal heimamanna á leiknum. �?ótt leikurinn fari fram á þjóðarleikvangi Frakka, Stade de France, sem tekur rúmlega 81 þúsund manns í sæti, eru allar líkur á því að uppselt verði mjög fljótt á leikinn. �?eir Íslendingar sem ætla sér að kaupa miða á leikinn þurfa því að hafa hraðar hendur til að næla sér í miða og í framhaldi af því að kaupa flugmiða og gistingu í París.
Miðasöluvefur UEFA
Formleg miðasala fer fram á vef UEFA og hefst hún eins og fyrr segir klukkan 12.00 á hádegi. Aftur á móti er hægt að fara í röð í miðasölunni klukkan 11:45 og má telja víst að það sé nauðsynlegt ef fólk vill eiga möguleika á að fá miða. Fyrir þann tíma er ekki vitlaust að líklegir kaupendur útbúi aðgang á síðu miðasölunnar. �?egar klukkan er 11:45 er svo smellt á �??Ticket portal�?? boxið neðarlega fyrir miðju á síðunni og haldið áfram þaðan í miðakaupsferlinu.