Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Embla Harðardóttir í leik gegn Víking R. í sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Embla Harðardóttir, leikmaður kvennaliðs ÍBV í fótbolta, meiddist illa í leik ÍBV og FH í síðustu umferð Bestu deildar kvenna. Hún meiddist eftir rúman hálftíma leik og var strax ljóst að um alvarleg meiðsli væri að ræða því hún var borin af velli á börum. 

Það hefur nú komið í ljós að hún er með slitið fremra krossband í hné en þetta staðfesti hún á Instagram síðu sinni fyrr í dag. Hún mun því ekki leika meira með ÍBV á þessu ári. 

Embla er tvítug og leikur sem miðjumaður. Hún hefur byrjað alla fimm leiki liðsins á þessu tímabili. 

Meiðsli hafa herjað á lið ÍBV í sumar en þær Fridrikka Maria Clementsen, Helena Hekla Hlynsdóttir og Allison Grace Lowrey hafa allar glímt við meiðsli í upphafi tímabils.

Nýjustu fréttir

Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.