Herjólfur sigldi enga ferð milli lands og Eyja í dag en ófært hefur verið í Landeyjahöfn í allan dag. Síðasta ferð dagsins var felld niður en tilkynnt verður klukkan 7:00 í fyrramálið hvort gera þarf breytingar á áætlun en annars verður siglt samkvæmt áætlun.