Enginn í einangrun eða sóttkví í Vestmannaeyjum

Eins og staðan er í dag er enginn í einangrun eða sóttkví í Vestmannaeyjum. Okkur hefur gengið vel í þriðju bylgju faraldursins hér í Vestmannaeyjum en það er ekki sjálfgefið. Velgengni okkar er fyrst og fremst ykkur bæjarbúum að þakka. Þið hafið svo sannarlega sýnt þá þrautseigju og samstöðu sem einkennir okkar samfélag og auðvitað ávallt gætt vel að smitvörnum. Þannig hefur okkur tekist að halda faraldrinum niðri.

Í gær tóku í gildi hertar aðgerðir á landsvísu þar sem m.a. tveggja metra reglan var tekin upp aftur og þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra nálægðartakmörk skal nota andlitsgrímu, s.s. í verslunum. Eins og segir hefur okkur gengið vel hingað til en það þýðir ekki að við getum túlkað þær reglur sem gilda á landsvísu þannig að okkur beri ekki að fara eftir þeim við ákveðnar aðstæður. Þvert á móti verðum við að túlka reglurnar á þann veg að almannahagsmunir gangi framar okkar eigin og fylgja settum reglum um smitvarnir í hvívetna. Matskennda reglu um grímunotkun verðum við að túlka með hliðsjón af almannahagsmunum og beinir aðgerðastjórn því þeim tilmælum til bæjarbúa að nota andlitsgrímur í verslunum. Allur er varinn góður.

Gangi ykkur vel.
F.h. aðgerðastjórnar,
Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðgerðastjóri.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.