Enn ósamið um makrílinn
31. október, 2022

Enn hefur ekkert samkomulag tekist um skiptingu makrílveiða milli strandríkjanna við Norðaustur-Atlantshaf. Engin niðurstaða varð úr hinum árlegu fundarhöldum í október, en áfram verður þó haldið að reyna að finna lausn. Fiskifréttir fjölluðu um málið í frétt um helgina.

Að sögn matvælaráðuneytisins var byrjað að „skoða tölur um hlutdeildarskiptingu á fundinum. Enn er langt á milli aðila en það var skref í rétta átt. Allir voru sammála um að meðbyr væri í umræðunum núna og ákveðið var að hafa a.m.k. tvær aðrar fundarlotur fram að áramótum, eina í byrjun nóvember og aðra í byrjun desember.”

Bretar hafa haldið utan um viðræðurnar á þessu ári og lagt mikla áherslu á að ná samkomulagi, enda hefur staða þeirra breyst mjög eftir Brexit. Þeir eru ekki lengur innan Evrópusambandsins, heldur eru þeir orðnir sjálfstætt strandríki með beina aðild að viðræðunum.

Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) telur ekki ráðlegt að veiða meira en 782.066 tonn af makríl á árinu 2023, og undanfarin ár hafa strandríkin í orði kveðnu verið sammála um að veiða ekki umfram ráðgjöfina, en engu að síður tekið sér einhliða veiðiheimildir sem samanlagt eru miklu hærri en ráðlagður heildarafli.

Svipaða sögu er að segja af skiptingu veiða úr hinum deilistofnunum tveimur, kolmunna og norsk-íslenskri síld. Árum saman hefur ekkert heildarsamkomulag verið í gildi með þeim afleiðingum að ár eftir ár er veitt umfram ráðgjöfina.

Ósjálfbær sókn
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra minntist á þetta langdregna þrátefli strandríkjanna í ávarpi sínu á sjávarútvegsdeginum nú í vikunni sem leið.

„Um árabil hefur það reynst þrautinni þyngra að ná samningum milli strandríkja Norður-Atlantshafsins um deilistofna á borð við norsk-íslenska síld, makríl og kolmunna,“ sagði hún. „Fyrir liggur að sóknin í stofnana er í sumum tilvikum langt umfram vísindalega ráðgjöf og því ósjálfbær. Íslensk stjórnvöld telja mikilvægt að semja um nýtingu deilistofna með það að markmiði að tryggja sjálfbæra nýtingu þeirra. Þannig tryggjum við best okkar hagsmuni sem fara saman við hagsmuni stofnanna sjálfra.“

Hún sagði umhverfisvitund fara vaxandi um heim allan og krafan um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda vegi sífellt þyngra í umræðunni.

„Þessar kröfur finn ég sem ráðherra málaflokksins og ég tek þær alvarlega. Fundað hefur verið stíft á árinu um makríl og Ísland hefur mætt lausnarmiðað til leiks en með skýrar, sanngjarnar og rökstuddar kröfur.“

Ýmis samtök kaupenda og vottunarsamtök á borð við MSC hafa ítrekað skorað á strandríkin að koma sér saman um skiptingu veiðanna.

Facebook
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
14. tbl. 2024
14. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst