Enn er ekki ljóst hversu alvarleg meiðsli miðjumannsins Tonny Mawejje eru en hann meiddist í leiknum gegn HK á sunnudaginn.  Óttast var að hann hefði slitið krossband í hnénu en Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV segir að eftir læknisskoðun gærdagsins bendi allt til þess að krossband sé ekki slitið.  Hins vegar gæti leikmaðurinn engu að síður verið frá í allt að þrjá mánuði.