Ert þú með nafn fyrir dagdvölina?

Nú er stækkun á dagdvölinni við Hraunbúðir í fullum gangi. Búið er að gera miklar breytingar til að koma til móts við fjölgun einstaklinga í dagdvölinni og þarfir þjónustuþega. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar.

Dagdvölin er úrræði fyrir einstaklinga sem búa í heimahúsum og þurfa stuðning í þeim tilgangi að viðhalda færni og getu til að búa áfram heima. Áhersla er lögð á að styðja notendur dagþjálfunnar til sjálfstæðis og sjálfræðis, ásamt því að efla færni og sjálfsbjargargetu heima og í dagdvöl, og auka lífsgæði þjónustuþega. Tekið er mið af getu hvers og eins þannig að hver og einn fái að njóta sín, finni fyrir öryggi og vellíðan. Boðið er meðal annars upp á aðstoð við böðun, æfingar og ýmis konar virkni.

Til þess að fullkomna breytingarnar mun dagdvölin fá nýtt nafn. Þess vegna óskum við eftir tillögum frá bæjarbúum að nafni á dagdvölina. Tillögurnar má senda á netfangið dagdvol@vestmannaeyjar.is merkt: Nafnasamkeppni.

Nýjustu fréttir

Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.