Eins og flestir Íslendingar vita nú er Landeyjahöfn aðeins nothæf í 8-9 mánuði á ári, sextán árum eftir opnun. Þetta ástand er algjörlega óásættanlegt og skammarlegt fyrir ríkisstjórnir og samgönguráðherra síðustu 16 ára. Eru sérfræðingar í alvörunni ennþá að átta sig á straumum, sandburði, öldutíðni, öldulengd, stærð á skipi og öðrum hlutum sem geta haft áhrif á Landeyjahöfn?
Ef mannkynið gat lent á tunglinu árið 1969 þá hlýtur íslenska ríkið að geta lokið nauðsynlegum breytingum eða öðrum aðgerðum sem tryggja opna og örugga Landeyjahöfn allt árið.
Með fullri virðingu fyrir Björgun og starfsmönnum á dýpkunarskipinu Álfsnesi þá er ljóst að þeim hefur verið troðið í verkefni sem þeir ráða engan veginn við og munu aldrei gera það miðað við núverandi skipakost. Þarf ráðuneytið og Vegagerðin í alvöru 16 ár til að átta sig á þessu? Já, í 16 ár hafa samgönguráðherrar og starfsfólk Vegagerðarinnar í umboði ráðherra samið um sanddælingu í Landeyjarhöfn vitandi að hér á landi er ekki til fyrirtæki með réttu skipin til að sjá um dýpkun í Landeyjahöfn. Hver hjá Vegagerðinni ber ábyrgð á þessu?
Bera yfirmenn stofnunarinnar ekki ábyrgð á að upplýsa ráðherra um stöðuna, eða að skipta út starfsfólki sem hefur ekki borið gæfu til að skila af sér sómasamlegri vinnu, eða hreinlega að skipta sjálfum sér út? Hvaða hagsmunir réðu því að samið var aftur og aftur við aðila sem höfðu ekkert í verkefnið að gera?
Fyrir mér liggur þetta einfaldlega svona: Ef þessar stofnanir og starfsfólk þeirra eru ekki starfi sínu vaxið, hvort sem það er t.d. við hönnun, samningagerð um dýpkun, framkvæmdir eða skipulag við að klára Landeyjahöfn, þá hlýtur það að vera krafa okkar að skipta því út fyrir nýtt starfsfólk sem hefur metnað til að gera hlutina almennilega. Ef við Eyjamenn hefðum fengið þetta verkefni í hendurnar, að ljúka hönnun og breytingum á Landeyjahöfn með fjárframlagi frá ríkinu, þá værum við ekki stödd í þessum forarpitt og framkvæmdum væri lokið! Í stað þess sitja Eyjamenn eftir með sárt ennið og ríkisstjórnir síðustu ára hafa sett plástra á sárið sem duga skammt. Plástra sem kosta fjármuni og þá eru teknir innviðir frá öðrum sveitarfélögum, samanber Baldur sem sér um mikilvægar samgöngur í Breiðafirði. Betra hefði verið að nýta þessa fjármuni í almennilega framtíðarsýn með fyrirbyggjandi aðgerðum. Það þarf stundum að hugsa til framtíðar.
Nú liggur fyrir að rannsóknir á jarðgöngum milli lands og Eyja verða fjármagnaðar af fyrirtækjum, einstaklingum og tveimur sveitarfélögum. Það er átakanlegt og raunverulega skammarlegt að horfa enn og aftur upp á aðgerðarleysi íslenska ríkisins og það virðist alltaf vanta framtíðarsýn og langtímahugsun. Það er einfaldlega þannig og stundum þarf að leggja út fjármuni til að spara þá síðar.
Eyjamenn hafa þar til fyrir fáeinum árum þurft að heyja harða varnarbaráttu. Baráttu gegn fækkun fólks, fækkun starfa og þar fram eftir götunum.
Nú er einhver stærsta uppbygging á Íslandi í Vestmannaeyjum miðað við höfðatölu en Eyjarnar eru jafnframt einn mikilvægasti útgerðarbær landsins. Laxey, eins og önnur fyrirtæki í Vestmannaeyjum, hafa átt í miklum vandræðum þegar Landeyjahöfn er lokuð. Til að mynda náði Laxey ekki að koma sementi yfir til Vestmannaeyja í heila viku til að halda uppbyggingu félagsins á áætlun.
Fyrirsjáanlegt er að þetta hefur áhrif á framkvæmdahraða fyrirtækisins. Undirritaður er staddur í Afríku við byggingu heilsugæslu þar sem steypa er einnig notuð í framkvæmdum. Þar tókum við eitt símtal og pöntuðum sement og það liðu ekki nema tvær klst. þar til afhending fór fram. Það var reyndar flutt á kerru sem asni dró áfram. Þarna komu 12 pokar af sementi, eftir þörfum og á tíma. Það eru áreiðanlegri afhendingar á sementi í Gambíu en frá Reykjavík til Vestmannaeyja þessa stundina. Mér finnst persónulega átakanlegt að segja frá því hvað við Eyjamenn erum í vonlausri stöðu varðandi þjónustu frá hinu opinbera.
Nú er komið að því að ríkið standi undir ábyrgð við að styrkja grunninn og byggja undir áframhaldandi uppbyggingu í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og landeldi hér í Vestmannaeyjum.
Ljúka þarf framkvæmdum við Landeyjahöfn án tafar og tryggja flutninga sem styðja við íbúafjölgun og atvinnuuppbyggingu í Vestmannaeyjum. Jafnframt er mikilvægt að ríkið styðji við uppbyggingu stórskipahafnar í Vestmannaeyjum til að mæta nýjum iðnaði sem mun verða ein af burðarstoðum íslensks atvinnulífs til framtíðar.
Áhyggjur mínar sem framkvæmdastjóri Laxey snúa ekki eingöngu að uppbyggingu Laxey í Vestmannaeyjum þó að þetta sé ein af stærstu einstöku framkvæmdum á Íslandi. Vandinn er dýpri, vinnumenningin á Alþingi og í ríkisstofnunum finnst mér einkennast af samskipta- og afkastaleysi sem gerir það að verkum að engin almennileg framtíðarsýn er til staðar. Íslenska þjóðin þarf fólk sem þorir að taka ákvarðanir, hefur drifkraft, tekur ábyrgð og er með framúrskarandi vinnusiðferði til að koma góðum hugmyndum í framkvæmd. Góðar hugmyndir eiga ekki að fara á bak við tjöldin til samninga milli flokka.
Ef kjörnir fulltrúar treysta sér ekki til að vinna af heilindum fyrir land og þjóð, er þeim þá stætt á að þiggja laun frá almenningi?
Nú er kominn tími til að Alþingi taki sig á. Hætti þessu gaspri fyrir aftan ræðupúltið, girði sig í brók, bretti upp ermarnar og vinni af ábyrgð fyrir samfélagið sem Alþingi er falið að þjóna. Ég hvet alla ráðamenn þvert á flokka að koma í heimsókn og taka spjallið um stöðu Vestmannaeyja. Ég væri þakklátur ef þið sýnduð Vestmannaeyjum jafn mikinn áhuga núna eins og þið gerið korter í kosningar.
Hér að neðan er svo listi yfir samgönguráðherra síðan árið 2009 til dagsins í dag, ásamt ráðuneytisstjórum þeirra frá 2017. Ég set það í hendur almennings og aðallega Eyjamanna að meta hvort þessir aðilar hafi staðið undir væntingum.
Daði Pálsson
Höfundur er framkvæmdastjóri Laxey í Vestmannaeyjum.
Samgönguráðherrar Íslands 2009–2026
Heiti embættis:
Samgönguráðherra (til 2009)
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra / innanríkisráðherra / innviðaráðherra (síðar)
Árni Páll Árnason – 2009–2011
(Samfylkingin) – samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Ögmundur Jónasson – 2011–2013
(Vinstri græn) – innanríkisráðherra (samgöngumál innan ráðuneytis)
Hanna Birna Kristjánsdóttir – 2013–2014
(Sjálfstæðisflokkur) – innanríkisráðherra
Ólöf Nordal – 2014–2017
(Sjálfstæðisflokkur) – innanríkisráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson – 2017–2021
(Framsóknarflokkur) – samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson – 2021–2024
(Framsóknarflokkur) – innviðaráðherra (samgöngur hluti af innviðum)
Eyjólfur Ármannsson – 2024–2026
(Flokkur fólksins) – innviðaráðherra (samgöngur hluti af innviðum)
Ráðuneytisstjórar samgöngumála 2017–2026
Ráðuneytisstjórar:
Ragnhildur Hjaltadóttir
Ráðuneytisstjóri Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins
(2017–2024)
Ingilín Kristmannsdóttir
Ráðuneytisstjóri Innviðaráðuneytisins
(2025–2026)