Eyjamenn sækja toppliðið heim
Sigurður Arnar Magnússon í baráttu við Framara í síðasta leik ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV mætir toppliði Víkings í 18. umferð Bestu deildar karla á Víkingsvelli í dag. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og eru mikilvæg stig í húfi fyrir Eyjamenn í harðri baráttu í neðri hluta deildarinnar.

Víkingar hafa verið í miklum ham í sumar og tróna á toppi deildarinnar með 44 stig eftir 17 leiki. Liðið hefur unnið 14 leiki, gert tvö jafntefli og aðeins tapað einum. Markatalan er sömuleiðis glæsileg, 56 mörk skoruð gegn aðeins 14 fengnum.

ÍBV er í 9. sæti með 16 stig eftir 17 leiki. Eyjamenn hafa unnið fjóra leiki, gert fjögur jafntefli og tapað níu. Baráttan í neðri hlutanum er gríðarlega þétt. Stjarnan er sæti ofar með 18 stig, KA og Þór eru með 15 stig og FH rekur lestina með 14.

Eyjamenn hafa átt erfitt uppdráttar í síðustu leikjum. Eftir 2-2 jafntefli gegn KA á Hásteinsvelli tapaði liðið 1-0 fyrir Breiðabliki og 2-1 gegn Fram í síðustu umferð. Síðasti sigur ÍBV í deildinni kom gegn Val, 1-0 á Hásteinsvelli 4. júlí.

Liðin hafa mæst einu sinni í deildinni í sumar. Þá hafði Víkingur betur, 2-0, á Hásteinsvelli 17. maí.

Fimm leikir í dag

Fimm leikir eru á dagskrá Bestu deildarinnar í dag og verður sérstaklega áhugavert fyrir Eyjamenn að fylgjast með úrslitum í leikjum liðanna í kringum ÍBV í töflunni.

Leikir dagsins:

  • 18:00 – ÍA – Þór
  • 18:00 – Víkingur R. – ÍBV
  • 18:00 – Stjarnan – Keflavík
  • 18:15 – KA – FH
  • 20:15 – Breiðablik – Valur

Nýjustu fréttir

Kjördagur í Vestmannaeyjum – 241 höfðu kosið klukkan 11
Styrkleikarnir í Herjólfsdal í dag
Á bak við tjöldin hjá Laxey í Viðlagafjöru
Djúpur tunglmyrkvi yfir Vestmannaeyjum
Gríðarlega mikilvæg stig í húfi á Hásteinsvelli
Eyjakonur sækja toppliðið heim
Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.