Vestmannaeyjar er frábær staður til að búa á. Hér er fjölbreytt atvinnu- og menningarlíf og samfélag sem stendur saman. Það er mikil uppbygging í gangi og okkur er að fjölga. Ég sé fyrir mér að við komumst yfir 5.000 íbúa á næsta kjörtímabili. Hér eru að skapast ný störf sem kalla á nýtt fólk, og við þurfum að vera tilbúin til að taka vel á móti þeim sem vilja setjast að í Eyjum. Nú er komin vinna af stað með nýjan leikskóla í Löngulág, sem er stórt og mikilvægt skref.
Sterkir innviðir fyrir vaxandi samfélag
Til að taka á móti fjölgun íbúa þurfum við að tryggja að innviðirnir okkar haldi í við vöxtinn. Nýr leikskóli er aðeins fyrsta skrefið. Við þurfum einnig að horfa til grunnskólans, framhaldsskólans og annarra þjónustustofnana sem gegna lykilhlutverki í daglegu lífi fjölskyldna. Það skiptir máli að börn og ungmenni hafi aðgang að góðu námi, öflugri aðstöðu og fjölbreyttum tækifærum í leik og námi.
Heilbrigðisþjónustan þarf líka að vera í takt við fjölgunina. Við viljum tryggja að allir íbúar, ungir sem aldnir, hafi greiðan aðgang að þjónustu sem er bæði fagleg og stöðug.
Góð tenging við fastalandið er mjög mikilvæg til að fyrirtæki og fólk þrífist í Vestmannaeyjum. Við þurfum að vera dugleg að pressa á ríkið að samgöngur hingað séu ásættanlegar. Það þarf að tryggja að hægt sé að sigla í Landeyjahöfn allt árið og eins þarf að bæta í flug á meðan ástandið er eins og það er.
Gangnarannóknir eru komna á fullt og við þurfum að tryggja að rikið komi inn í þær rannsóknir á fullum krafti.
Vinna við stórskipahöfn er komin af stað og vonandi ef allt gengur upp byrjað að nota hana 2032. Hún á eftir að vera mikil lyftistöng fyrir Veastmannaeyjar og landið allt.
Atvinnulíf sem byggir á styrkleikum og nýjum tækifærum
Atvinnulífið í Vestmannaeyjum hefur lengi verið sterkt og fjölbreytt. Sjávarútvegurinn er burðarás sem við byggjum á, en á sama tíma eru að skapast ný tækifæri í laxeldi, ferðaþjónustu, nýsköpun og þjónustugreinum. Með aukinni fjölgun íbúa eykst eftirspurn eftir fjölbreyttari þjónustu, sem skapar rými fyrir ný fyrirtæki og frumkvöðla.
Við þurfum að skapa umhverfi þar sem nýsköpun fær að blómstra og þar sem ungt fólk sér framtíðarmöguleika. Með því að styðja við sprotafyrirtæki, menntun og tækni getum við byggt upp atvinnulíf sem er bæði sterkt og sjálfbært til framtíðar.
Húsnæði og skipulag til framtíðar
Ef við ætlum að taka á móti nýjum íbúum þurfum við að tryggja nægt og fjölbreytt húsnæði. Það þarf að henta bæði fjölskyldum, einstaklingum og eldri borgurum. Ný hverfi þurfa að vera vel skipulögð, með góðum leiksvæðum, gönguleiðum og grænum svæðum sem styrkja lífsgæði og heilsu.
Við þurfum að hugsa til framtíðar og byggja upp sjálfbær hverfi sem standast tímans tönn. Það er mikilvægt að húsnæðismál séu ekki hindrun fyrir fólk sem vill flytja til Eyja heldur hvati.
Samfélagið sem gerir Eyjarnar einstakar
Það sem gerir Vestmannaeyjar að einstökum stað er fólkið. Hér er öflugt íþróttalíf, rík menning í listum og sterkt félagsstarf sem heldur samfélaginu saman. Við þurfum að halda áfram að styðja við félagasamtök, íþróttafélögin okkar og menningarstarf þá m.a leikhúsið, tónlistarfólkið okkar og okkar frábæru myndlista og listamenn og konur í Hvíta húsinu.
Nýir íbúar þurfa að finna sig velkomna og eiga auðvelt með að aðlagast. Það gerist með opnu samfélagi, góðum upplýsingum og tækifærum til þátttöku. Sterkt samfélag er besta auglýsingin fyrir Eyjarnar.
Sjálfbær framtíð og verndun náttúrunnar
Vestmannaeyjar eru einstakt náttúrusvæði sem við berum ábyrgð á að vernda. Við þurfum að halda áfram að byggja upp sjálfbærar lausnir í orkumálum, samgöngum og skipulagi. Með ábyrgri nýtingu auðlinda tryggjum við að komandi kynslóðir geti notið þess sama og við gerum í dag.
Framtíðin er björt og hún er í okkar höndum
Vestmannaeyjar eru á mikilli siglingu. Með áframhaldandi uppbyggingu, sterkum innviðum og samheldnu samfélagi getum við tryggt að Eyjarnar verði áfram einn besti staður landsins til að búa á. Við höfum tækifæri til að skapa framtíð sem byggir á styrkleikum okkar, metnaði og samvinnu.
Framtíð Vestmannaeyja er björt og saman getum við gert hana enn betri.
Erlingur Guðbjörnsson, skipar 3. sæti Eyjalistans fyrir komandi kosningar.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.