Eyjarnar landa í Grindavík
Vestmannaey V Landar 20220717 111132
Landað úr Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarar Bergs – Hugins, Bergey VE og Vestmannaey VE, hafa fiskað vel að undanförnu. Þetta kemur fram í frétt á fréttasíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að túrarnir hafi verið stuttir, en veðrið hafi verið breytilegt.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey lét vel af fiskiríinu. „Við lönduðum fullfermi af karfa í Grindavík þann 30. apríl og lönduðum þar aftur á sunnudag og þá var aflinn að mestu karfi en dálítil ýsa með. Í báðum túrum var veitt í Grindavíkurdýpinu þannig að það var stutt að fara. Í fyrri túrnum var haugabræla en fínt veður í þeim seinni,”sagði Jón. Bergey hélt á ný til veiða í gærkvöldi og það er karfi á dagskránni í túrnum.

Vestmannaey landaði í Grindavík á sunnudaginn og mun landa þar á ný í dag. Í báðum túrum var um fullfermi að ræða. Egill Guðni Guðnason skipstjóri er ánægður með veiðarnar. „Við höfum verið að veiðum á Selvogsbankanum og aflinn hefur mest verið ýsa. Túrarnir hafa verið stuttir eða um það bil tveir dagar. Veðrið hefur verið tiltölulega gott en mér finnst þó vanta lofthitann, hiti vorsins lætur bíða eftir sér,” sagði Egill Guðni.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.