FH sækir Eyjamenn heim í dag - Reynst ÍBV erfiðir síðustu ár
,,FH-ing­ar freista þess að ná fimm stiga for­ystu í Pepsi-deild karla í knatt­spyrnu þegar þeir sækja Eyja­menn heim í fyrsta leik 11. um­ferðar í dag á meðan ÍBV reyn­ir að snúa geng­inu við eft­ir þrjá tap­leiki í röð,” segir Víðir Sigurðsson í Morgunblaðinu í dag en liðin mætast á Hást4einsvelli klukkan 16.00 í dag.
Gengi liðanna hefur verið ólíkt síðustu umferðir því aðeins eitt stig skildi liðin að eft­ir sjö um­ferðir þegar FH var með 14 stig á toppn­um og ÍBV stigi á eft­ir. Nú er FH með 21 stig en Eyja­menn sitja áfram með 13 og hafa sigið niður töfl­una.
Víðir bendir á að FH-ing­um hef­ur gengið ákaf­lega vel í Eyj­um um ára­bil en þeir hafa aðeins einu sinni tapað í síðustu ell­efu heim­sókn­um sín­um á Há­steinsvöll í deild­inni. ÍBV náði að sigra árið 2011, þá 3:1, en af hinum tíu leikj­un­um í Eyj­um frá 2003 hef­ur FH unnið sjö og þrír hafa endað með jafn­tefli.
Fé­lög­in hafa sam­tals mæst 50 sinn­um í efstu deild frá 1975. FH hef­ur unnið 23 leiki en ÍBV 15 og 12 hafa endað með jafn­tefli. Marka­tal­an er 90:73, FH í hag.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.