Fimleikafélagið Rán hafnaði í 2. sæti

Fimleikafélagið Rán hefur haft í nógu að snúast undanfarið, um síðustu helgi kepptu 1. og 3. flokkur félagsins á Haustmóti stökkfimi og náði þar glæsilegum árangri, en stelpurnar í 3. flokki höfnuðu í 2. sæti á mótinu.

Við ræddum við Sigurbjörgu Jónu Vilhjálmsdóttur, þjálfara félagsins, sem sagði okkur frá því sem framundan er hjá Rán.

„Framundan eru spennandi verkefni,“ segir Sigurbjörg. „Næstu helgi keppa stelpur úr 4. og 5. bekk á Selfossi, og þann 30. nóvember fara nokkrar stelpur í hæfileikamótun þar sem áhersla verður lögð á stökk og undirbúning fyrir landslið. Þetta er einstakt tækifæri fyrir þær til að vaxa og keppa á enn hærra stigi.“

Sigurbjörg bendir þó á að þrátt fyrir að félagið sé að stækka og æfingar að verða sífellt meira krefjandi, setur aðstaðan sem þeim ákveðnar skorður. ,,Það er ákveðin áskorun að vinna með flóknari æfingar og stökk án búnaðar eins og púðagryfju.” Með bættri aðstöðu gætum við tekið starfið okkar á næsta stig og aukið öryggi iðkenda til muna á sama tíma, segir Sigurbjörg.

Fimleikafélagið Rán verður með sýna árlegu jólasýningu í byrjum desember og býður bæjarbúa hjartanlega velkomna á hana, þar sem afrakstur vetrarins verður sýndur.

Nýjustu fréttir

Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Olís deildirnar hefjast í vikunni
Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.